A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Samkeppni um lógó Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps

| 06. september 2011
Merki sveitarfélaganna fjögurra sem standa að Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.
Merki sveitarfélaganna fjögurra sem standa að Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.
Óskað er eftir tillögum að lógó félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps. Lógóið þarf að vera tilbúið til notkunar á tölvutæku formi.

Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps er sameiginleg félagsþjónusta sveitarfélaganna, Árneshrepps, Kaldrananeshrepps, Strandabyggðar og Reykhólahrepps. Félagsþjónustann sinnir þjónustu á sviði barnaverndar, félagslegrar ráðgjafar, fjárhagsaðstoðar, málefni fatlaðs fólks, félagslegrar heimaþjónustu og málefni aldraðra.

 

Einkennisorð félagsþjónustunnar eru mannvirðing, fordómaleysi og trúnaður.

 

Tillögurnar óskast sendar inn á skrifstofu Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík ekki seinna en 18. september 2011, merktar „lógó". Félagsmálastjóri tekur við tillögunum. Nánari upplýsingar veitir Hildur Jakobína Gísladóttir félagsmálastjóri í síma 842-2511 eða í gegnum netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is.

 

Í verðlaun eru heiðurinn á höfundaverki kennimerkisins auk 50.000 króna.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón