A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Óskað eftir tillögum vegna Menningarverðlauna

| 19. maí 2011
Menningarvitar á Hamingjudögum - ljósm. Ingimundur Pálsson
Menningarvitar á Hamingjudögum - ljósm. Ingimundur Pálsson

Tómstunda-, íþrótta- og menningarmálanefnd Strandabyggðar auglýsir hér með eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Strandabyggðar, en þau verða veitt á Hamingjudögum í sumar. Þetta er í annað skiptið sem verðlaunin eru veitt, en í fyrra fékk Tón- og grunnskólinn á Hólmavík þau fyrir uppsetningu á Grease. Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklings, félags, stofnunar, fyrirtækis eða hóps fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar í sveitarfélaginu á liðnu ári. Tómstunda-, íþrótta- og menningarmálanefnd skipar dómnefnd sem velur úr innsendum tillögum. Tilnefningum má skila á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið skrifstofa@strandabyggd.is til miðnættis sunnudaginn 19. júní.  


Eftirfarandi starfsreglur gilda um Menningarverðlaun Strandabyggðar:  

1)
Menningarverðlaun Strandabyggðar, eru veitt árlega til einstaklings, félags, stofnunar, fyrirtækis eða hóps fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar í sveitarfélaginu á liðnu ári. Markmiðið með verðlaununum er að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í Strandabyggð. Verðlaunin eru afhent við hátíðlega athöfn á Hamingjudögum á Hólmavík ár hvert.  

2) Ákvörðun um handhafa verðlaunanna er tekin af Menningarmálanefnd Strandabyggðar að fengnum tilnefningum. Auglýst skal eftir tilnefningum frá íbúum Strandabyggðar í maí eða júní ár hvert. Tilnefningum skal komið til menningarmálanefndar í gegnum tölvupóst eða með öðrum leiðum fyrir ákveðin tíma. Nefndin ákveður tímamörk og hvaða leiðir skulu hafðar við að taka á móti tilnefningum. Nefndin er ekki bundin af tilnefningum í ákvörðun sinni um verðlaunahafa.  

3) Verðlaunahafi fær afhent viðurkenningarskjal undirritað af Menningarmálanefnd, verðlaunagrip og einnig minni verðlaunagrip til minningar um útnefninguna.  

4) Veita má fleiri en ein verðlaun hverju sinni, telji Menningarmálanefnd að fleiri en einn aðili hafi skarað fram úr og þannig verðskuldað verðlaunin það ár. Nefndin ákveður hvort um tvenn eða fleiri aðalverðlaun er að ræða eða ein aðalverðlaun og ein eða fleiri aukaverðlaun.   

5) Menningarmálanefnd kemur fréttum um útnefninguna og menningarstarf verðlaunahafans á framfæri í eins mörgum fjölmiðlum og kostur er.
 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón