A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Nýtt lógó Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps

| 20. október 2011
« 1 af 2 »
Nýlega var haldin samkeppni um kennimerki „lógó" félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps og voru þó nokkuð margar tillögur sendar inn. Valið var erfitt þar sem allar tillögurnar voru vandaðar, hugmyndaríkar og skemmtilegar. Hins vegar þarf alltaf að velja eina og bar Friðlaugur Jónsson sigur úr býtum. Tillaga hans var með skírskotun í galdratákn og byggðasögu svæðisins með nútímalegri nálgun. Upphafsstafir Félagsþjónustu Stranda og Reykhóla (FSR) er í kennimerkinu auk þess sem 4 hlutar mynda þau fjögur sveitarfélög sem standa að félagsþjónustunni en það eru Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur og Strandabyggð. Græni hlutinn táknar notendur félagsþjónustunnar.

 

Friðlaugur er fæddur og uppalinn á Ísafirði en býr í Reykjavík í dag. Hann útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Myndlistakólanum á Akureyri árið 2008. Hann hefur unnið á hinum ýmsu auglýsingastofum og grafísku vinnustofum auk þess sem hann sá um umbrot og útgáfu sjónvarpsvísisins Almanaks við annan mann um tveggja ára skeið. Í dag starfar hann hjá tölvuleikjafyrirtækinu Fancy Pants Global í Kópavogi sem sérhæfir sig í leikjum og forritum fyrir snjallsíma og töflur. Skemmst er frá því að segja að hann sigraði einnig merkjasamkeppni sem haldin var í vor á vegum Snjóflóðaseturs Veðurstofu Íslands fyrir SNAPS verkefnið. Heimasíða höfundar er: www.frilli7.com

 

Auk heiðursins að höfundarétti kennimerkisins voru 50.000 krónur í verðlaun. Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps þakkar öllum þátttakendum fyrir sendar tillögur og óskar Friðlaugi innilega til hamingju með heiðurinn.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón