A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Nýr vefur tekinn í notkun hjá Strandabyggð.

| 17. apríl 2009

Loks hefur verið tekin í notkun ný heimasíða Strandabyggðar en grunnur vefsins er hannaður af Snerpu á Ísafirði.  Mun vefurinn leysa þann gamla af hólmi og endist okkur vonandi vel enda auðvelt að bæta við hann eftir því sem nýjungar í vefjagerð líta dagsins ljós.  Hér verður gerð nokkur grein fyrir hinum nýja vef, verkefnum hans og væntingum.

 

Hlutverk vefjarins er þríþætt. Honum er í fyrsta lagi ætlað að geyma upplýsingar og gögn varðandi sveitarfélagið, rekstur þess og þjónustu, í öðru lagi að flytja fréttir úr héraðinu og í þriðja lagi að vera gagnabrunnur varðandi náttúru og sögu héraðsins. Fyrsti þátturinn er kominn talsvert á veg en þó vantar enn upp á að allar upplýsingar séu komnar inn.  Annar þátturinn verður spunninn jafnóðum eftir bestu getu en stefnt verður að því að uppfæra fréttir og tilkynningar daglega.  Þriðja hlutanum verður seint lokið en ætlunin er að gera þeim hluta góð skil sem komi til með að nýtast heimamönnum jafnt sem ferðamönnum.

 

Grunnur nýja vefjarins er ofinn hjá Snerpu á Ísafirði en umsjónarmenn prjóna eða hekla við hann smátt og smátt.  Margar undirsíður eru faldar enn sem komið er og verða ekki birtar fyrr en nægilegt byrjunarefni telst vera komið þar inn.  Einnig þarf að slípa og snyrta og laga margt sem þegar hefur verið birt.

 

Umsjónarmenn vefjarins eru Sigurður Marinó Þorvaldsson og Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri en til að vefurinn verði lifandi og fjölbreyttur er vonast til að íbúar sem og aðrir veiti liðsinni og bendi á atburði sem telja má fréttnæma eða frásagnarverða á þessum vettvangi.  Rétt er að hafa í huga, að smáfréttir úr mannlífinu (nú eða dýralífinu) geta verið alveg eins merkilegar og stórfréttir - og oft skemmtilegri. Allar ábendingar eru vel þegnar og senda inn stafrænar myndir netleiðis til umsjónarmanna á netföng þeirra.  Jafnframt er nauðsynlegt að lesendur vefjarins séu vakandi yfir hvers konar villum og missögnum og láti vita af þeim, svo að laga megi og leiðrétta.  Þar má líka nefna ábendingar um óvirka tengla.

 

Þegar nýjar undirsíður verða opnaðar og nýir efnisþættir líta dagsins ljós verður þess að öllum jafnaði getið í fréttahluta vefjarins. Notendur í Strandabyggð þurfa samt alltaf að hyggja vel að reitnum þar sem tilkynningar af margvíslegu tagi verða birtar. Rétt er líka að vekja athygli á atburðadagatalinu (almanakinu) hægra megin. Þegar smellt er á dökkbláa daga birtast upplýsingar um fundi eða mannfagnaði eða aðra viðburði sem umsjónarmenn vefjarins hafa fengið vitneskju um.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón