A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Minnum á kynningu á Félagsþjónustu Stranda og Reykhóla

| 25. apríl 2011
Hildur Jakobína Gísladóttir, félagsmálastjóri Stranda og Reykhóla
Hildur Jakobína Gísladóttir, félagsmálastjóri Stranda og Reykhóla

Sveitarfélagið Strandabyggð fagnar að geta boðið íbúum upp á nýja og sameiginlega Félagsþjónustu Stranda og Reykhóla. Þjónustan er mikilvægur liður í áframhaldandi þróun og uppbyggingu á svæðinu.


Félagsmálastjóri, Hildur Jakobína Gísladóttir, mun halda kynningu á Félagsþjónustunni í Félagsheimilinu á Hólmavík þriðjudaginn 26.apríl n.k. kl. 18:00 og eru allir íbúar hvattir til að mæta.

Málaflokkar sem kynntir verða:

  • Barnavernd
  • Félagsleg ráðgjöf
  • Fjárhagsaðstoð.
  • Heimaþjónusta
  • Málefni aldraðra
  • Málefni fatlaðra

 

Eftir kynninguna gefst íbúum tækifæri á að koma á framfæri hugmyndum sínum, vangaveltum og spurningum.

 

Kynning þessi verður haldin í öllum þeim fjórum sveitarfélögum sem hafa sameinast um Félagsþjónustuna en það eru ásamt Strandabyggð, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og Reykhólahreppur.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón