Menningarverðlaun Strandabyggðar 2025
Heiðrún Harðardóttir | 05. maí 2025
Tómstunda-, íþrótta- og menningarmálanefnd Strandabyggðar auglýsir eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Strandabyggðar.
Í ár verður Lóan, menningarverðlaun Strandabyggðar, veitt í sextánda skiptið. Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklings, félags, stofnunar, fyrirtækis eða hóps fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar í sveitarfélaginu á liðnu ári ásamt því að oft eru veitt hvatningarverðlaun til frekari starfa í menningarmálum.
Öflugt lista og menningarstarf er verðmætt öllum samfélögum en ekki síst litlum sveitarfélögum á borð við Strandabyggð og því er dýrmætt að verðlauna það sem vel er gert.
Öflugt lista og menningarstarf er verðmætt öllum samfélögum en ekki síst litlum sveitarfélögum á borð við Strandabyggð og því er dýrmætt að verðlauna það sem vel er gert.
Tilnefningum ásamt rökstuðningi, má skila á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is til miðnættis laugardaginn 31. maí.
Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd skipar dómnefnd sem velur úr innsendum tillögum.