A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Leikskólinn Lækjarbrekka - laus störf

| 01. ágúst 2013

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennurum eða leiðbeinendum til framtíðarstarfa og jafnframt starfsmanni í eldhús og ræstingar í afleysingar til áramóta. Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugum starfskröftum sem hafa gaman af vinnu með börnum, búa yfir góðri samskiptahæfni og hafa ríka þjónustulund. Einnig er skipulagshæfni og jákvæðni mikilvægur kostur. Starfsmenn þurfa að geta hafið störf sem fyrst. 
         
Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið leikskolastjori@holmavik.is. Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3 eða til leikskólastjóra, ásamt ferilskrá og meðmælendum fyrir kl. 12:00 á hádegi miðvikudaginn 21. ágúst 2013. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón