A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laust starf í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík

| 11. nóvember 2016
Starfsmann vantar í Íþróttamiðstöðina á Hólmavík.  Um er að ræða lifandi og skemmtilegt starf sem felst meðal annars í afgreiðslu, baðvörslu, sundlaugarvörslu, þrifum, umsjón með tjaldstæði og öðrum tilfallandi verkefnum. Um er að ræða framtíðar starf og þarf starfsmaður að geta hafið störf sem fyrst. Gerð er krafa um búsetu í Strandabyggð. Unnið er á vöktum. Gerð er krafa um jákvæðni og ríka þjónustulund, stundvísi, dugnað, sjálfstæð vinnubrögð og kunnáttu í erlendum tungumálum. Í reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum kemur fram að starfsmenn sem sinna laugargæslu skuli hafa náð 18 ára aldri og standast eftirfarandi hæfnispróf sjá nánar um starfið hér.  Umsóknum má skila á skrifstofu Strandabyggðar eða Íþróttamiðstöðvar fyrir lok dags þann 18. nóvember og nálgast má umsóknareyðublöð hér.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón