A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laus staða yfirleiðbeinanda Vinnuskóla Strandabyggðar

| 25. mars 2014

Vinnuskóli Strandabyggðar auglýsir eftir yfirleiðbeinanda sumarið 2014. Eitt fimm vikna tímabil verður í boði í Vinnuskóla Strandabyggðar í sumar og hefur yfirleiðbeinandi umsjón með því.

Hægt verður að kanna þann möguleika að samræma starf yfirleiðbeinanda og önnur störf í sveitarfélaginu eftir þörfum.

Vinnuskóli Strandabyggðar heyrir undir tómstundafulltrúa og er í nánu samstarfi við verkstjóra Áhaldahúss.

Í starfinu felast eftirfarandi verkefni:

- Yfirumsjón með verkefnum og fræðslu
- Verkstjórn yfir aðstoðarfólki
- Verkstjórn yfir ungmennum í 7.-10. bekk
- Yfirumsjón og skipulagning verkefna
- Ábyrgð á verkfærum og innkaupum á vegum Vinnuskólans
- Samskipti og samstarf við áhaldahús, sveitarstjóra og tómstundafulltrúa Strandabyggðar og íbúa á svæðinu
- Annað sem til fellur


Gerð er krafa um góð samskipti og góð tengsl við fólk á öllum aldri, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og þjónustulund. Tómstundafulltrúi áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum, standist þeir ekki kröfur.

Umsóknum skal skila á Skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, og er umsóknarfrestur til og með 4.apríl 2014. Einnig er hægt að senda umsóknir í tölvupósti á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is

Umsóknareyðublöð um störf hjá Strandabyggð má sjá neðst til hægri hér á síðunni.

Umsóknarfrestur er til og með föstudagsins 4. apríl

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón