A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Kynningarfundur um hvítbók haldinn á Ísafirði

| 16. nóvember 2011
Hvítbók um náttúruvernd.
Hvítbók um náttúruvernd.
Fimmtudaginn 24. nóvember stendur umhverfisráðuneytið fyrir almennum kynningarfundi á Ísafirði um hvítbók sem nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga skilaði af sér í haust og felur í sér heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi. Hvíbókin verður grunnur að væntanlegri endurskoðun náttúruverndarlaga sem unnið verður að á komandi mánuðum. Í hvítbókinni er m.a. fjallað um nýjar aðferðir og viðhorf sem hafa rutt sér til rúms í náttúruvernd víða um heim og settar eru fram tillögur um hvernig koma megi þessum aðferðum og hugmyndum inn í íslenska löggjöf.

Lögð er áhersla á að útfæra meginregur umhverfisréttar í nýjum náttúruverndarlögum, fjallað er ítarlega um friðlýsingar og annars konar verndaraðgerðir hér á landi, vatn, almannarétt og svo mætti lengi telja. Opið umsagnarferli vegna hvítbókarinnar er nú hafið og stendur til 15. desember næstkomandi. Hvítbókin og umsagnirnar verða svo sem fyrr segir lagðar til grundvallar heildarendurskoðun núgildandi náttúruverndarlaga sem stendur fyrir dyrum.

Hvítbókin var m.a. til umfjöllunar á Umhverfisþingi sem haldið var 14. október síðastliðinn á Selfossi. Til að koma til móts við þá sem ekki áttu heimangegnt þann dag efnir umhverfisráðuneytið til almennra kynningarfunda á nokkrum stöðum á landsbyggðinni. Fundurinn á Ísafirði verður haldinn fimmtudaginn 24. nóvember kl. 17 - 18:15 á 4. hæðinni í Stjórnsýsluhúsinu en þar mun Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri á Umhverfisstofnun, kynna efni hvítbókarinnar og svara spurningum. Eru allir áhugasamir hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að kynna sér innihald hvítbókarinnar.

Nánari umfjöllun um hvítbókina, upptökur frá kynningunni á umhverfisþingi og bókina sjálfa má nálgast á vefslóðinni www.umhverfisraduneyti.is/hvitbok


Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón