A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Kjörskrá og kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012

| 11. október 2012
Kjörskrá liggur frammi til kynningar í afgreiðslu Strandabyggðar í Hnyðju fram að kjördegi en einnig getur fólk farið inn á slóðina http://www.kosning.is/thjodaratkvaedagreidslur2012/kjorskra/ til að kynna sér hvar það er skráð.

Ein kjördeild verður í Strandabyggð og verður kjörstaður í Hnyðju, Höfðagötu 3 Hólmavík. Vinsamlegast athugðið breytta staðsetningu.

Kjörfundur hefst kl. 09:00 laugardaginn 20. október 2012 en kjörstaður verður opinn frá kl. 10:00 -17:00 (sbr. 89 gr. laga um kosningar til alþingis nr. 24/2000).

Sérstök athygli kjósenda er vakin á 79. gr. laga nr. 24/2000:
,,Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér svo sem með því að segja til sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörstjórninni afhendir kjörstjórn honum einn kjörseðil".


Oddviti kjörstjórnar Strandabyggðar,
Guðmundur Björgvin Magnússon

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón