A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Kjörskrá og kjörfundur vegna alþingiskosninga 27. apríl

| 17. apríl 2013
Kjörskrá liggur frammi til kynningar í afgreiðslu Strandabyggðar í Hnyðju fram að kjördegi en einnig getur fólk farið inn á slóðina http://kosning.is/althingiskosningar til að kynna sér hvar það er skráð. Ein kjördeild verður í Strandabyggð og verður kjörstaður í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík. Kjörfundur hefst kl. 9:00 laugardaginn 27. apríl 2013 en kjörstaður verðir opinn frá kl. 10:00-17:00 (sbr. 89 gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000).

Sérstök athygli kjósenda er vakin á 79. gr. laga nr. 24/2000:
"Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér svo sem með því að segja til sún og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörstjórninni afhendir kjörstjórn honum einn kjörseðil".

Oddviti kjörstjórnar Strandabyggðar,
Guðmundur Björgvin Magnússon.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón