A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Hreyfivika

Salbjörg Engilbertsdóttir | 18. maí 2016


Hreyfivika UMFÍ, árleg lýðheilsuherferð, hefst mánudaginn 23. maí næstkomandi en hún hefur það að markmiði að kynna kosti þess að stunda hreyfingu og íþróttir. Í fyrra voru þátttakendur í Hreyfiviku UMFÍ um 40 þúsund talsins um land allt. 

Í ár verður boðið upp á skemmtilega keppni á milli sveitarfélaga, sem og póstnúmera innan sveitarfélaga, í gegnum heilsuleikinn Sidekick.

Sidekick er einfaldur, myndrænn og skemmtilegur snjallsímaleikur, gerður af heilbrigðishugbúnaðarfyrirtækinu SidekickHealth sem stofnað var af tveimur íslenskum læknum. Leikurinn byggir á umfangsmiklu rannsóknarstarfi við Háskóla Íslands, Karolinska-sjúkrahúsið, Sænsku sykursýkissamtökin, Harvard, MIT Media Lab og Massachussetts General sjúkrahúsið í Boston. Í Sidekick skrá þátttakendur t.d. hversu mikið þeir hreyfa sig og hversu oft þeir borða ávexti eða grænmeti og sinna streitustjórn meðan á Hreyfivikunni stendur og safna þannig stigum fyrir sig og sitt sveitarfélag. Með virkni sinni í Sidekick safna notendur vatni handa börnum í neyð sem UNICEF, samstarfsaðili SidekickHealth, sér um að dreifa þar sem þörfin er mest hverju sinni. Nú þegar hafa Sidekick notendur, með heilsueflingu sinni, safnað yfir 200.000 lítrum af hreinu vatni handa börnum í neyð.

Hér er hlekkur á stutt kynningarmyndband um Sidekick: 
https://www.youtube.com/watch?v=k8BDlHhH4n4

Keppnin er aðallega til gamans gerð en að sjálfsögðu með það að markmiði að hvetja fólk um land allt til að stunda heilbrigðan lífsstíl.

Til að taka þátt sækja þátttakendur heilsuleikinn Sidekick í snjallsímann sinn (App Store eða Google Play). Til að virkja skráninguna og keppa fyrir sitt póstnúmer og sveitarfélag skrá þátttakendur inn póstnúmerið sem þeir ætla að keppa fyrir (Breiðhyltingar setja t.d. inn 109). Þegar inn í Sidekick heilsuleikinn er komið er öll sú hreyfing sem fólk stundar (dans, göngutúrar, hlaup, sund o.s.frv.) skráð með afar einföldum og myndrænum hætti ásamt æfingum í mataræðis- og streitustjórn. Því meiri heilsuefling, því fleiri stig!


Við biðlum til ykkar að slást í för með okkur í þessu skemmtilega verkefni með því að hvetja íbúa til að taka þátt með því að kynna keppnina á heimasíðum sveitarfélaganna ykkar, Facebooksíðum, með tölvupóstum eða öðrum boðleiðum sem í boði eru. Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu líka til að taka þátt og safna þannig stigum fyrir sveitarfélögin ykkar og veita skemmtilegum en afar mikilvægum boðskap stuðning.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón