A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Hörmungardagar

| 14. janúar 2014
Ópið eftir Edward Munch
Ópið eftir Edward Munch

Hörmungardagar á Hólmavík verða haldnir í fyrsta skipti 14.-16. febrúar næstkomandi. Um er að ræða nýja menningarhátíð þar sem hugmyndin er að gefa listum, tilfinningum og tjáningu sem sjaldnast fær rými tækifæri til að líta dagsins ljós. Tilveran er fjölbreytileg og margslungin og listsköpunin sömuleiðis; tónlist getur verið drungaleg, upplifun getur verið yfirþyrmandi og tilfinningar geta verið það sem við köllum neikvæðar, jafnvel þótt þær séu ekki alslæmar. Þarna gefst tækifæri til að njóta, miðla og taka þátt í viðburðum og listum sem sjaldan fá næga athygli, svo sem erfiðum upplifunum, svokölluðum neikvæðum tilfinningum og alls konar niðurdrepandi skemmtun, allt eftir hugarrfóstri hvers og eins.

Á dagskránni má búast við viðburðum á borð við Braggablús, hörmungar barsvar, morðgátukvöldverð, kvörtunarþjónustu, tækifærum til að fá útrás, öskuræfingum, hörmungargöngu, harmleik,tónleikum,  fræðslu um hörmulega atburði á Ströndum og svo framvegis.

Dagskráin er enn í mótun en mun vera auglýst þegar nær dregur. Stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar innan bæjar sem utan eru hvattar til að senda tillögur að atburðum á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is sem allra fyrst og tryggja sér sess í þessari nýstárlegu hátíð og skemmtilegu tilraun til að lífga upp á skammdegið. Þátttakendur eru hvattir til að fara frjálslega með þema hátíðarinnar og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn.

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón