A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Grunnskólinn á Hólmavík auglýsir starf stuðningsfulltrúa

| 17. janúar 2011
Grunnskólinn á Hólmavík auglýsir starf stuðningsfulltrúa í 1. og 2. bekk laust til umsóknar. Um er að ræða 77,5% starf frá kl. 8:00-14:00 mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 8:00-16:00 á miðvikudögum og kl. 8:00-13:00 á föstudögum til 1. júní 2011.


Skólinn er samrekinn grunn- og tónlistarskóli sem leggur sérstaka áherslu á tónlist og tjáningu í skólastarfi. Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám og samvinnu. Einnig er áhersla lögð á umhverfismál og flaggar skólinn Grænfánanum frá því í vor.


Umsækjandi þarf að hafa góða skipulagshæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum.


Lýsing á starfi:
Stuðningsfulltrúi vinnur í teymi með kennurum bekkjarins, sérkennara og iðjuþjálfa. Starfsvettvangur stuðningsfulltrúa verður innan bekkjarins sem hann er ráðinn til og er stuðningsfulltrúi kennara til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði þessara nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum. Starfið tekur mið af þar til gerðri áætlun sem hefur það að markmiði að draga smám saman úr þörf nemanda á stuðningi í þeim tilvikum þar sem það er hægt. Yfirmaður stuðningsfulltrúa eru skólastjórar en umsjónarkennari sér um faglegt nám og starf  bekkjarins og fylgir stuðningsfulltrúi því starfi. Einnig eru sérkennari og iðjuþjálfi ráðgefandi  um aðferðir og lausnir fyrir einstaka nemendur. Laun eru samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði vegna starfs stuðningsfulltrúa.


Umsóknarfrestur er til föstudagsins 21. janúar nk.


Umsóknum skal skilað til:
Skrifstofu Strandabyggðar, netfang holmavik@holmavik.is
Hafnarbraut 19
510 Hólmavík

Frekari upplýsingar um starfið veita:

Bjarni Ómar Haraldsson skólastjóri, sími 892-4666 og 451-3129
Hildur Guðjónsdóttir aðstoðarskólastjóri, sími 451-3129 og 661-2010.
Netfang skólans er: skolastjorar@holmavik.is
Veffang skólans er: www.strandabyggd.is/grunnskolinn

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón