A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Grunn- og Tónskólinn á Hólmavík auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar

| 20. maí 2011
Grunn- og Tónskólinn á Hólmavík - ljósm. Jón Jónson
Grunn- og Tónskólinn á Hólmavík - ljósm. Jón Jónson

 
  1.    Aðstoðarskólastjóri

 

Umsækjandi um stöðu aðstoðarskólastjóra þarf að hafa kennsluréttindi og kennslureynslu á grunnskólastigi. Þekking, reynsla eða menntun á sviði stjórnunar er æskileg. Áhugi á listgreinum er mikilvægur en áhugi á þróunarstarfi, teymisvinnu og kennsluháttum sem tengjast hugmyndafræði um einstaklingsmiðað nám er skilyrði. Umsókn skal fylgja greinargerð þar sem fram kemur reynsla og menntun umsækjanda, hvaða sýn hann hefur á skólastarf, nýbreytni og hlutverk aðstoðarskólastjóra í skólastarfi.

 

Laun fara eftir kjarasamningi LN og SÍ. Ráðning og upphaf starfs miðast við 1. ágúst 2011.

 

  2.    Tungumálakennari

100% staða tungumálakennara á unglingastigi, kennslugreinar danska og enska.

 

  3.    Tónlistakennari

100% staða tónlistarkennara. Kennslugreinar: píanó á grunnstigi, gítar, bassagítar og slagverk á grunn eða miðstigi auk tónfræðigreina.

 

  4.    Stuðningsfulltrúar

3 stuðningsfulltrúar til að sinna nemendum með sérþarfir og lengdri viðveru nemenda, stöðuhlutfall er frá 75 - 100%.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningum LN og KÍ vegna kennarastaða en samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði vegna starfa stuðningsfulltrúa.

 

Ráðning til auglýstra starfa miðast við næsta haust og þurfa umsækjendur að hefja störf eigi síðar en 15. ágúst 2011.

 

Umsóknarfrestur um allar stöðurnar er til 1. júní 2011.

 

Umsóknum ásamt ferilskrá og meðmælum skal skilað til:


Grunnskólans á Hómavík Skólabraut 20, 510 Hólmavík


Frekari upplýsingar veita:


Bjarni Ómar Haraldsson, skólastjóri, sími 892-4666 og 451-3129.

Hildur Guðjónsdóttir, aðstoðarskólastjóri, sími 451-3129 og 661-2010.


Netfang: skolastjorar@holmavik.is og vefur skólans er www.strandabyggd.is/grunnskolinn 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón