A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

G-reglan, Grýla Árneshreppsbúa

| 06. janúar 2012
Ekki verður rutt í Árneshrepp í 75 daga samfleytt. Mynd Jón G. Guðjónsson
Ekki verður rutt í Árneshrepp í 75 daga samfleytt. Mynd Jón G. Guðjónsson
Í augum margra Árneshreppsbúa er 6. janúar ein óvinsælasta dagsetningin. Ástæðan er sú að nú er komið að þeim hluta ársins að vegurinn þangað verður ekki ruddur fyrr en vora tekur samkvæmt almanakinu. Nánar tiltekið 20. mars eða í 75 daga samfleytt. Ástæðan er sú að Árneshreppur fellur undir G-reglu um snjómokstur og er eina sjálfstæða sveitarfélag landsins sem þarf að lúta þeirri reglu. Þetta er afleitt, enda er aðeins ein akleið til og frá hreppnum. Undanfarin ár hefur ítrekað verið þrýst á að þessi leið verði færð á sama þjónustustig og í öðrum sveitarfélögum, en ekki hefur orðið af því enn að Árneshreppsbúar hafi verið losaðir úr klóm G-reglunnar.

Greinarhöfundur: Elísa Ösp Valgeirsdóttir

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón