A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Fulltrúar Viðlagatryggingar Íslands í heimsókn

| 24. febrúar 2017

Í gær heimsóttu fulltrúar Viðlagatryggingar Íslands (VTÍ ) til fundar við fulltrúa Strandabyggðar og Kaldrananeshrepps á skrifstofu Strandabyggðar á Hólmavík. Heimsóknin var liður í átaki stofnunarinnar til að bæta þekkingu á hlutverki hennar og skráningu opinberra mannvirkja í eigu sveitarfélaganna sem vátryggð eru hjá VTÍ.

Farið var yfir vátryggingavernd mannvirkja í eigu sveitarfélaganna og um mikilvægi þess að skráð verðmæti þeirra sé uppfært reglulega til að tryggja að eignirnar séu vátryggðar að fullu áður en vátryggingaratburður á sér stað. Einnig var rætt um mikilvægi samvinnu sveitarfélaga og VTÍ til að stuðla að markvissri endurbyggingu ef til tjónsatburðar kemur.

Á fundinum var rætt um mikilvægi þess að íbúar séu meðvitaðir um hvort  vátryggingavernd þeirra sé í lagi. Fram kom á fundinum að ef innbú er vátryggt almennri lausafjártryggingu hjá vátryggingafélagi rennur hluti iðgjaldsins til VTÍ og tryggir þannig vátryggingavernd innbúsins komi til tjóns af völdum jarðskjálfta, eldgosa, vatns-, aur- eða snjóflóða skv. skilgreiningum laga um VTÍ (55/1992). Ef slík vátrygging er ekki til staðar greiðast engar bætur vegna innbús ef til tjóns kemur. Allar fasteignir eru hins vegar skylduvátryggðar gegn náttúruhamförum og eru iðgjöldin innheimt samhliða brunatryggingum fasteigna hjá almennu vátryggingafélögunum.“

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón