A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Fróðlegur fyrirlestur fyrir 7.-10. bekk næsta föstudag

| 29. ágúst 2012
Bergvin hress í bragði - ljósm. visir.is
Bergvin hress í bragði - ljósm. visir.is
Föstudaginn 31. ágúst kl. 20:00 ætlar Bergvin Oddsson - Beggi blindi - að kíkja í Félagsmiðstöðina Ozon með fyrirlestur og uppistand. Viðburðurinn er fyrir 7.-10. bekk. Beggi er fyndinn og skemmtilegur náungi sem hefur slegið í gegn með uppistandi sínu. Hann missti sjónina þegar hann var í 9. bekk, en lætur það ekki hamla sér á neinn hátt. Hann hefur skrifað skáldsögur fyrir börn og unglinga og hefur einnig gefið út eigin reynslusöguna "Að heyra barnið sitt vaxa" sem fjallar um hvernig er að annast barnið sitt án þess að sjá það.


Þessi misserin stundar Bergvin nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands auk þess að flakka um landið með uppistand og fyrirlestra fyrir unglinga. Uppistandið hefst kl. 20:00. Aðgangseyrir er aðeins kr. 200 og viðburðurinn er einungis fyrir krakka í 7.-10. bekk. Allir krakkar á Ströndum og Reykhólum í þessum bekkjum eru innilega velkomnir.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón