A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Einbýlishús í eigu Strandabyggðar auglýst til leigu

| 07. september 2011
Skólabraut 18 er á sölu. Nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar í síma 550 3000.
Skólabraut 18 er á sölu. Nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar í síma 550 3000.

Einbýlishús í eigu sveitarfélagsins Strandabyggðar að Skólabraut 18 er auglýst laust til tímabundinnar útleigu. Húsið er á sölu og er uppsagnarfrestur á leigusamningi 3 mánuðir. 

Í húsinu sem er á einstökum stað eru 4-5 svefnherbergi, tvöföld stofa, eldhús, þvottahús, geymslur, baðherbergi og gestaklósett auk bílskúrs. Húsið er laust til útleigu nú þegar. Eignin leigist í núverandi ásigkomulagi. Leiguverð er kr. 96.406. Umsóknir skal senda með pósti merkt: Skrifstofa Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík eða senda umsókn í tölvupósti á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is fyrir kl. 12 á hádegi mánudaginn 19. september 2011. Þeim umsækjendum sem þegar eiga umsóknir um leiguhúsnæði er bent á að endurnýja umsóknir sínar samkvæmt nýjum reglum, sjá hér að neðan.

Sveitarstjórn úthlutar íbúðunum samkvæmt eftirfarandi reglum sem samþykktar voru í sveitarstjórn 21. júní 2011:

Reglur um útleigu á íbúðarhúsnæði
í eigu sveitarfélagsinsStrandabyggðar

Samþykktar í sveitarstjórn Strandabyggðar 21. júní 2011

 

1. Strandabyggð getur leigt út íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins, bæði tímabundið og ótímabundið. Gerðir eru skriflegir samningar við leigutaka og er miðað við þriggja mánaða uppsagnarfrest af beggja hálfu. Heimilt er að tengja leigugjald við vísitölu. Leigugjald skal taka mið af verði á almennum markaði á svæðinu og jafnframt stærð, aldri, gerð og ástandi húsnæðis.

 

2. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að breyta leiguverði samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar. Tilkynna skal leigutökum um slíkt áður en breytingin tekur gildi með þriggja mánaða fyrirvara.

 

3. Sveitarstjórn getur tekið ákvörðun um að selja leiguíbúðir og íbúðarhús í eigu sveitarfélagsins. Skylt er að tilkynna leigutaka um slíka ákvörðun þegar hún liggur fyrir.

 

4. Þegar íbúðarhúsnæði losnar er meginregla að það tiltekna húsnæði skuli auglýst opinberlega til leigu og óskað eftir umsóknum. Þeir sem þegar hafa lýst yfir áhuga á leiguhúsnæði í eigu sveitarfélagsins þurfa að endurnýja umsókn sína hverju sinni. Miða skal við að auglýsing sé uppi á viðteknum stöðum í sveitarfélaginu og jafnframt birt á vef Strandabyggðar í að minnsta kosti 10 daga áður en umsóknarfrestur rennur út. Í einstökum tilfellum getur sveitarstjórn vegna sérstakra aðstæðna tekið formlega ákvörðun um að fyrirkomulag sé annað.

 

5. Áður en íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins er úthlutað til leigu skal leita eftir umsögn félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps um hvort þörf sé fyrir úthlutun þess á grundvelli félagslegra aðstæðna og sjónarmiða.

 

6. Sveitarstjórn skal á fundi sínum fjalla um og úthluta leiguíbúðum samkvæmt fyrirliggjandi umsóknum með hliðsjón af aðstæðum umsækjenda.

 

7. Fara skal með umsóknir sem trúnaðarmál.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón