A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Ályktun varðandi stöðu sauðfjárbænda

| 18. ágúst 2017
Kirkjubólsrétt í Strandabyggð 2016. Mynd: AnKrJó
Kirkjubólsrétt í Strandabyggð 2016. Mynd: AnKrJó

Sveitarstjórn Strandabyggðar tók á fundi sínum í gær undir ályktun Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefndar varðandi stöðu sauðfjárbænda, en ályktunin er svohljóðandi:

Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd lýsir þungum áhyggjum vegna erfiðleika hjá sauðfjárbændum. Sauðfjárbúskapur er næst stærsta atvinnugreinin í sveitarfélaginu. Ef fram fer sem horfir mun afkoma fjölda íbúa í Strandabyggð versna um 40-50% á tveimur árum. Ekkert samfélag þolir það án þess að skaðast efnahags- og félagslega. Þau sveitarfélög þar sem sauðfjárbúskapur er aðal atvinnugreinin munu verða verst úti.
 


Atvinnu-, dreifbýlis og hafnarnefnd Strandabyggðar tekur heils hugar undir
yfirlýsingu landssamtaka sauðfjárbænda frá 11. ágúst og treystir því að stjórnvöld muni grípa til allra mögulegra aðgerða til hjálpar sauðfjárbændum, afurðastöðvum og sveitarfélögum til að komast yfir þá tímabundnu erfiðleika sem nú blasa við. Að gera ekkert í þeirri stöðu sem nú er uppi væri ótrúlegt skeytingarleysi og fyrirlitning gagnvart byggðum landsins.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón