A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

6 mánaða skýrsla sveitarstjóra

| 08. mars 2011
Frá vinstri: Jón Jónsson, varaoddviti, Ásta Þórisdóttir, Bryndís Sveinsdóttir, Katla Kjartansdóttir, Jón Gísli Jónsson oddviti og Ingibjörg Valgeirsdóttir sveitarstjóri. Mynd Brian Berg.
Frá vinstri: Jón Jónsson, varaoddviti, Ásta Þórisdóttir, Bryndís Sveinsdóttir, Katla Kjartansdóttir, Jón Gísli Jónsson oddviti og Ingibjörg Valgeirsdóttir sveitarstjóri. Mynd Brian Berg.
Um þessar mundir eru átta mánuðir síðan ný sveitarstjórn tók við í Strandabyggð og sex mánuðir síðan undirrituð tók við starfi sveitarstjóra. Á þessum mánuðum höfum við fengið mikilvægt tækifæri til að kynnast hagsmunum íbúa Strandabyggðar og starfsemi sveitarfélagsins nánar.  Það hefur verið ánægjulegt að ræða við íbúa og starfsfólk í stofnunum og nefndum á vegum Strandabyggðar og finna fyrir bæði metnaði og áhuga á þróun og uppbyggingu samfélagsins. Þetta hefur verið lærdómsríkur tími og ljóst að þannig verður það áfram, enda mikilvægt að starfsemi sveitarfélagsins sé í stöðugri þróun og endurskoðun.

 

Virk skoðanaskipti þar sem dregnar eru fram ólíkar hliðar á málum áður en ákvarðanir eru teknar er farsæl leið til framfara. Slík skoðanaskipti viljum við eiga sem oftast við íbúa Strandabyggðar, hvort sem er á skipulögðum fundum, í óformlegu spjalli  eða með því að taka við erindum til nefnda og sveitarstjórnar.  Við hvetjum ykkur eindregið til að láta í ykkur heyra varðandi þá þætti sem þið eruð ánægð með í sveitarfélaginu og  benda okkur á það sem betur má gera.

 

Til upplýsingar fyrir íbúa verður hér farið lauslega yfir helstu verkefni sem sveitarstjórnarfólk og starfsfólk Strandabyggðar hefur unnið að undanfarna mánuði.

Hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

F.h. sveitarfélagsins Strandabyggðar,
Ingibjörg Valgeirsdóttir, sveitarstjóri.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón