A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

100% starf í leikskólanum Lækjarbrekku

| 22. ágúst 2011
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í fullt starf. Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Við leitum eftir öflugu fólki sem hefur gaman af að starfa með börnum, er jákvætt og býr yfir góðri samskiptahæfni.

 

Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@holmavik.is

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3, ásamt ferilskrá og meðmælendum fyrir kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 26. ágúst 2011. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar.

Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón