Íþróttamiðstöð og tjaldsvæði
- Sumarstarfsmenn í sundlaug og tjaldsvæði, sundlaugarvarsla og fleira. Starfsmenn þurfa að ná kröfum sundlaugarvarðar og hafa náð 18 ára aldri. Nánari upplýsingar má finna hér.
- Sumarstarfsmenn í íþróttamiðstöð og tjaldsvæði, afgreiðslu og þrif. Umsækjendur þurfa að hafa náð 16 ára aldri. Nánari upplýsingar má finna hér.
Sumarnámskeið
- Umsjónaraðili með sumarnámskeið. Sumarnámskeið eru í júní í um það bil tvær vikur hálfan eða heilan dag. Nánari upplýsingar má finna hér.
Vinnuskóli
- Umsjón með vinnuskóla, stærsti hluti starfs fer fram í júní, nánari upplýsingar má finna hér.
- Vinnuskóli og umhverfisfegrun
- Vinnuskóli, aðstoð á leikskóla
- Vinnuskóli, aðstoð í íþróttamiðstöð
Eignasvið, áhaldahús og Sorpsamlag Strandasýslu ehf
- Áhaldahús: Um er að ræða almenn verkamannastörf í Áhaldahúsi við slátt og viðhald eigna. Nánari upplýsingar hér.
- Sorpsamlag: Um er að ræða vinnu á sorpbíl og gámabíl. Meiraprófs er krafist ásamt lyftararéttindum (vinnuvélaréttindi).
Velferðarþjónusta
- Liðveisla barna, hlutastarf í félagsþjónustu.
- Önnur aðstoð og liðveisla, hlutastarf í félagsþjónustu
Nánari upplýsingar veitir Hlíf Hrólfsdóttir félagsmálastjóri í tölvupósti felagsmalastjori@strandabyggd.is
Fræðslustofnanir
- Leikskólinn Lækjarbrekka. Um er að ræða afleysingarstörf í leikskóla. Leikskólinn er lokaður vegna sumarleyfa frá lok júní til 5. ágúst.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 6. apríl og sótt um er um rafrænt í gegnum Microsoft forms eða á eyðublöðum sem finna má hér og senda í tölvupósti á strandabyggd@strandabyggd.is eða koma með á skrifstofu Strandabyggðar.
Umsóknarfrestur fyrir vinnuskóla er til miðnættis 6. apríl og er sótt um rafrænt í gegnum Microsoft forms.