A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Umhverfis- og skipulagsnefnd 25. júní 2012

Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar fimmtudaginn
25. júní 2012 kl. 16:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundinn sátu: Jón Gísli Jónsson formaður, Ingibjörg Emilsdóttir, Stefán Jónsson, Valgeir Örn Kristjánsson, Ingimundur Jóhannsson.


Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:


1. Erindi frá Jóhönnu Guðmundsdóttur varðandi skráningu á húseigninni að Borgabraut 31.
Borist hefur erindi frá Jóhönnu Guðmundsdóttur varðandi skráningu á sumarhúsi sínu í íbúðarhús.

Erindið samþykkt. Byggingafulltrúa falið að sjá um framkvæmd málsins.


2. Erindi frá Lax-á ehf. varðandi veiðihús í landi Heiðarbæjar.
Lax-á sækir um að flytja veiðihús frá Blöndu og setja niður í land Heiðarbæjar samkvæmt meðfylgjandi gögnum.

Erindið samþykkt.


Önnur mál

a) Borist hefur erindi frá Sorpsamlagi Strandasýslu varðandi efnistöku á urðunarsvæði.
Nefndin vísar erindinu til sveitarstjórnar. Nauðsynlegt er að finna nýtt svæði til efnistöku.

b) Umræður um garðaúrgang í Strandabyggð.
Nefndin telur að nauðsynlegt sé að móta stefnu til framtíðar varðandi förgun garðaúrgangs í Strandabyggð.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 16:55


Jón Gísli Jónsson (sign)
Ingimundur Jóhannsson (sign)
Ingibjörg Emilsdóttir (sign)
Stefán Jónsson (sign)
Valgeir Örn Kristjánsson (sign)

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón