A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Atvinnu- dreifbýlis- og hafnarnefnd - 9. nóvember 2017

Fundur var haldinn í Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd Strandabyggðar fimmtudaginn 9. nóvember 2017, kl. 18:00, í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík.

Til fundarins voru boðaðir fulltrúar ADH nefndar: Haraldur V. A. Jónsson, Jóhann L. Jónsson, Sverrir Guðmundsson, Bryndís Sveinsdóttir og Guðrún E. Þorvaldsdóttir.

Birna Karen Bjarkadóttir er boðuð sem áheyrnarfulltrúi Ungmennaráðs Strandabyggðar, Angantýr mætti í hennar stað.

Sverrir Guðmundsson boðaði forföll og var Marta Sigvaldadóttir mætt í hans stað.

 

Fundardagskrá er svohljóðandi:

  1. Fjallskilasjóður
  2. Fjárleitir á svæðum þar sem ekki er búið
  3. Réttarbygging
  4. Svæðisskipulagstillaga DRS
  5. Refa- og minnkaveiði
  6. Önnur mál

 

Þá var gengið til dagskrár.

  1. Fjallskilasjóður
    Atvinnu, dreifbýlis- og hafnarnefnd ætlar að leita leiðbeininga vegna stofnunar fjallskilasjóðs í Strandabyggð og vill stefna að því að slíkum sjóði verði komið á árinu 2018.

  2. Fjárleitir á svæðum þar sem ekki er búið
    Vísað er í bókun við lið númer 1. Leita þarf leiða til að sinna fjallskilum á svæðum þar sem ekki er sauðfjárbúskapur.

  3. Réttarbygging
    Lögð er áhersla á að fjármagn verði sett í réttarbyggingu í Skeljavík í fjárhagsáætlun 2018.

  4. Svæðisskipulagstillaga DRS
    Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd Strandabyggðar gerir ekki athugasemd við tillöguna.

  5. Refa- og minnkaveiði
    Auglýsa þarf eftir refaveiðimönnum á tvö svæði í Strandabyggð. Stefnt er að því að auglýsa upp úr áramótum.

  6. Önnur mál
    Bent var á að bera þurfi á Kirkjubólsrétt á komandi sumri.
    Engin önnur mál.

 

Fundi slitið kl. 18:53

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón