Samantekt vegna sjálfboðaliðaverkefnis á vegum SEEDS
Samantekt
SEEDS sjálfboðaliðaverkefni
8. - 20. júní 2009
Hólmavík, Strandabyggð
Umhverfsnefnd Strandabyggðar hafði frumkvæði að því í mars 2009 að sækja um að fá sjálfboðaliða frá SEEDS sjálfboðaliðasamtökunum. Sveitarstjórn samþykkti verkefnið 12. mars og var þá gengið frá umsókn til samtakanna. Sótt var um að fá tíu manna hóp, átta sjálfboðaliða og tvo verkefnis- og umhverfisstjóra til að vinna að viðhaldi á göngustíg í Kálfanesborgum í tvær vikur. Lagt var upp með að hópurinn myndi gista í Grunnskólanum og hafa þar aðstöðu til að elda fyrir sig. Þá var lagt til að hópurinn fengi aðgang að sundlaug og sturtum í Íþróttamiðstöð frítt, enda ætlast til að fólkið hafi aðgang að baðaðstöðu sem ekki er fyrir hendi í skólanum. Þá var hugmynd að bjóða hópnum upp á einhverja afþreyingu, og var nefnt hestaferð og sjóstöng.
Hópurinn sem kom var einungis sex aðilar að verkefnisstjóra meðtöldum. Hópurinn samanstóð af fjórum konum og tveim körlum frá sex löndum á aldrinum 17 ára til 32 ára. Þau komu að kvöldi 8. júní og fóru á hádegi 20. júní.
Að undirbúning verksins stóðu undirrituð, Ásta Þórisdóttir og Lýður Jónsson. Fórum við um göngustígana til að meta hvað ætti að gera þar. Leitað var til Ingibjargar Fossdal sem gengur þessa leið hvern dag til að meta hvar þörfin væri brýnust. Fór hún tvær ferðir með okkur, aðra í aðdraganda verkefnisins og hina þegar við bættist nýtt verkefni. Viljum við sérstaklega þakka henni fyrir það. Fyrir komu hópsins var gerð vinnulýsing og efnislisti, og þurfti að kaupa bæði verkfæri og efni í verkefnið.
Hópurinn vann daglega 6 - 8 tíma í göngustígunum og gekk verkið fljótar en áætlað var. Í byrjun annarrar viku var ljóst að hægt væri að bæta við verkefnið og var þá byrjað að laga leiðina upp úr Rósulundi, en ekki tókst þó að klára það. Hópurinn lagaði göngustíginn og breytti á nokkrum stöðum eftir fyrirmælum, byggði eina göngubrú úr timbri og eina litla pallbrú. Ingibjörg Emilsdóttir tók að sér að mála á skiltin sem standa við göngustígana, en hún tók það einnig að sér að ná í skiltin og festa þau upp aftur. Viljum við þakka henni fyrir frábært starf. Aðkoma starfsmanna áhaldahúss hreppsins að verkefninu var mjög góð og voru þeir boðnir og búnir til að koma með áhöld, möl og verkfæri í tíma og ótíma.
Afþreying
Hópurinn hafði aðgang að sundlaug sveitarfélagsins gjaldfrjálst og nýtti það hvern dag. Þá voru einstaklingar og fyrirtæki sem buðu hópnum gjaldfrjálst í heimsókn ss. Sauðfjársetur og Galdrasafnið. Þá var farin ferð út á Drangsnes, en þaðan fór hópurinn í bátsferð út í Grímsey og á sjóstöng í boði einkaaðila. Að lokum var farin ferð inn í Ísafjarðardjúp að Kaldalóni þar sem undirrituð fóru með hópinn í göngu upp að Drangajökli og var endað í Dalbæ. Þá var keypt hestaferð af Strandahestum fyrir hópinn. Hópurinn stóð fyrir þjóðakynningu á Kaffi Galdri síðasta kvöldið sitt á Hólmavík, þar sem fólki var boðið að bragða á mat og drykk frá heimalöndum sjálfboðaliðanna og einnig íslenskan mat. Þá voru sýndar myndir frá verkefninu, haldin spurningakeppni og boðið upp í dans. Ágætlega var mætt á viðburðinn og var almenn ánægja með hann.
Kostnaður
Kostnaður við verkfæri og efni
Hjólbörur, skóflur og vinnuvettlingar: 79.580 kr.
Kostnaður vegna matarkaupa
SEEDS: 52.686 kr.
KSH: 18.991 kr.
Bónus: 9.443 kr.
Samtals: (1230 kr. per. pers á dag) 81.120 kr.
Kostnaður vegna afþreyingar
Hestaferð: 21.000 kr.
Olía v. ferðalaga: 6.511 kr.
Samtals: 27.511 kr.
Annað
Gjafir: (vettlingar) 15.000 kr.
Samtals kostnaður: 203.211 kr.
Atriði sem betur hefðu mátt fara
-Það fórst fyrir að hafa samband við skólastjóra Grunnskólans áður en málið var lagt fyrir sveitastjórn, og hefði það vissulega átt að gera. Það þyrfti að finna aðra lausn varðandi gistingu fyrir svona hóp, svo almenn sátt sé um verkefnið.
-Fyrirkomulag á matarkaupum hefði verið betra ef það hefði alfarið verið á hendi móttökuaðilans (sveitarfélagsins) vegna þess hvað það flækir málin að tveir aðilar komi að því. Fyrirkomulag á fæðiskostnaði átti að vera að sveitarfélagið myndi sjá um kaup á mat, en þó var það þannig að fyrsti kosturinn var keyptur af SEEDS, en af okkur eftir það.
Þessi atriði voru klárlega mistök undirritaðra sem tóku að sér að skipuleggja og halda utan um verkefnið.
Það er mat okkar að öll vinna hópsins hafi verið til fyrirmyndar, virkilega vandað til verka og bæði gert af kunnáttu og natni. Öll samskipti okkar við sjálfboðaliðasamtökin SEEDS hafa verið skilvirk og góð. Við teljum að það sé mikill akkur að fá svona sjálfboðaliða til starfa í verkefni fyrir sveitarfélagið og leggjum við til að sótt verði um fyrir annan hóp næsta sumar og hafist handa við að undirbúa það verkefni sem fyrst. Við teljum einnig að skoða ætti að fá sérstakan hóp í að vinna fyrir bæjarhátíðina "Hamingjudagar á Hólmavík", en góð reynsla er af sjálfboðaliðum í Kaldrananeshreppi fyrir Bryggjuhátíð.
Ásta Þórisdóttir
Lýður Jónsson
