Félagsmiđstöđin OZON
Félagsmiðstöðin Ozon er staðsett innan veggja Grunnskólans og heldur Bjarni Ómar Haraldsson utan um starfið ásamt nemendaráði Grunnskólans. Innan félagsmiðstöðvarinnar fer fram hefðbundið starf s.s. opin hús tvisvar í viku og viðburðir í tengslum við það. Félagsmiðstöðvarstarfið hjá Ozon sækir í grunninn hugmyndir til Johns Dewey um reynslunám og byggir starfið á virkri þátttöku og skapandi starfi sem veitir nemendum reynslu til framtíðar. Enginn leiktæki eru í félagsmiðstöðinni önnur en þau sem kalla fram þessa sköpunargleði, virku þátttöku og hugmyndaauðgi. Nemendur hafa sjálfir með ötulli vinnu og söfnunum komið sér upp góðri aðstöðu fyrir hljómsveitir með hljóðfærum auk annars sem nauðsynlegt er í starfið.
Á undanförnum árum hefur starfsemi félagsmiðstöðvarinnar verið að færast nokkuð í vöxt og teljum við forvarnargildi starfsins ótvírætt þar sem meiri áhersla er lögð á skipulagt og krefjandi starf. Áhugi krakkana er viðhaldinn með ýmsum nýjungum og eru áherslur og markmið okkar í sífelldri þróun. Stærstu breytingarnar eru þó í kringum þau samskipti sem aukist hafa mikið á milli félagsmiðstöðva. Annarsvegar höfum við tekið þátt í starfsemi Samfés (Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi ) og hinsvegar með aukið samskipti við félagsmiðstöðvar í nágrannasveitarfélögum. Félagsmiðstöðin hefur einnig staðið fyrir ýmsum menningarviðburðum á Hólmavík og ber þar hæst Lista- og menningarhátíð ungs fólks sem haldin er ár hvert.
