Arnar tómstundafulltrúi međ umsjón međ Ozon

Bjarni Ómar Haraldsson skólastjóri við Grunn- og Tónskólann á Hólmavík hefur nú látið af störfum sem forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Ozon eftir margra ára farsælt og gott starf þar með krökkunum. Bjarna Ómari er þakkað kærlega fyrir starf hans við félagsmiðstöðina.

Arnar Snæberg Jónsson hefur nú tekið við nýju starfi tómstundafulltrúa Strandabyggðar en í því starfi felst meðal annars umsjón með félagsmiðstöðinni Ozon. Arnar hefur nú fundað með Bjarna Ómari og nemendaráði og fer starf félagsmiðstöðvarinnar í gang í vikunni 10. - 14. janúar og er margt spennandi á dagskránni hjá þeim. Hægt verður að fylgjast með fréttum og tilkynningum á síðu Ozon á vef skólans.

Arnar er með B.A. gráðu í tómstunda og félagsmálafræðum frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Hann hefur undanfarin ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra Sauðfjársetursins á Sævangi og verið leiðandi í uppbyggingu þess og markaðssetningu. Arnar er í stjórn Menningarráðs Vestfjarða og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið Strandabyggð með setu í nefndum og ráðum. Arnar starfar einnig sem stundakennari í lífsleikni, tónmennt, upplýsingatækni og leikrænni tjáningu við Grunn- og Tónskólann á Hólmavík.  

  

Arnar Jónsson er boðinn velkominn til starfa.

Félagsmiđstöđin OZON

Félagsmiðstöðin Ozon er staðsett innan veggja Grunnskólans og heldur Bjarni Ómar Haraldsson utan um starfið ásamt nemendaráði Grunnskólans. Innan félagsmiðstöðvarinnar fer fram hefðbundið starf s.s. opin hús tvisvar í viku og viðburðir í tengslum við það. Félagsmiðstöðvarstarfið hjá Ozon sækir í grunninn hugmyndir til Johns Dewey um reynslunám og byggir  starfið á virkri þátttöku og skapandi starfi sem veitir nemendum reynslu til framtíðar. Enginn leiktæki eru í félagsmiðstöðinni önnur en þau sem kalla fram þessa sköpunargleði, virku þátttöku og hugmyndaauðgi. Nemendur hafa sjálfir með ötulli vinnu og söfnunum komið sér upp góðri aðstöðu fyrir hljómsveitir með hljóðfærum auk annars sem nauðsynlegt er í starfið.


Á undanförnum árum hefur starfsemi félagsmiðstöðvarinnar verið að færast nokkuð í vöxt og teljum við forvarnargildi starfsins ótvírætt þar sem meiri áhersla er lögð á skipulagt og krefjandi starf. Áhugi krakkana er viðhaldinn með ýmsum nýjungum og eru áherslur og markmið okkar í sífelldri þróun. Stærstu breytingarnar eru þó í kringum þau samskipti sem aukist hafa mikið á milli félagsmiðstöðva. Annarsvegar höfum við tekið þátt í starfsemi Samfés (Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi ) og hinsvegar með aukið samskipti við félagsmiðstöðvar í nágrannasveitarfélögum. Félagsmiðstöðin hefur einnig staðið fyrir ýmsum menningarviðburðum á Hólmavík og ber þar hæst Lista- og menningarhátíð ungs fólks sem haldin er ár hvert. 

Nemendur Atburđir
« Maí 2012 »
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nćstu atburđir

Vefumsjón