Arnar Snćberg Jónsson | 31. maí 2011 |

Síđasta félagsmiđstöđin í bili

Nú eru nýafstaðin gistikvöld hjá báðum deildum Ozon. Eldri deildin kom saman á Galakvöldi í Bragganum á Hólmavík fimmtudaginn 26. maí í boði Ozon og foreldra þátttakenda sem reiddu fram dýrindis þríréttaða máltíð sem hefði sæmt hvaða toppveitingastað sem er. Unglingum úr Reykhólasveitinni var einnig boðið á Galakvöldið og fjörlegt diskótek eftir borðhald. Eftir diskóið var skundað upp í félagsmiðstöð þar sem kíkt var í tölvu, Singstar og Guitar Hero, farið í ljósaperu aldarinnar (10. bekkur vann) og kíkt á ís með hnausþykkri marssósu áður en menn luku kvöldinu við kvikmyndagláp og spjall um allt milli himins og jarðar.

Yngri deildin mætti hins vegar í miðstöðina kl. 22:00 mánudaginn 30. maí og skemmti sér konunglega við viðtæki nútímans; tölvur, sjónvörp og PS2 leiki. Forstöðumaður Ozon lét ljós sitt skína með pizzabakstri og spurningakeppni (sem 7. bekkur vann) og auðvitað var ísinn reiddur fram með nýrri og enn þykkri marssósu. Bíómyndirnar á risaskjánum urðu að lokum þrjár, en það var á mörkunum að fólk kæmist fyrir í setustofunni þetta kvöldið og nóttina þar sem 30 krakkar mættu á svæðið - hress og kát að vanda!

Að lokum langar mig til að þakka öllum krökkum og foreldrum í Ozon kærlega fyrir lærdómsríkan og skemmtilegan vetur! Ég er strax farinn að hlakka til næsta vetrar :)

Bestu kveðjur,
Arnar S. Jónsson.
Arnar Snćberg Jónsson | 30. maí 2011 |

Gistikvöld hjá 5.-7. bekk

Eins og fram kom á dreifimiða sem dreift var til foreldra barna í 5.-7. bekk nýlega er fyrirhugað að halda árlegt náttfatapartý hjá 5.-7. bekk í félagsmiðstöðinni Ozon nú í kvöld, mánudagskvöldið 30. maí. Við byrjum klukkan 22:00, en þar sem morgundagurinn er hefðbundinn vinnudagur hjá foreldrum margra barna daginn eftir ljúkum við kvöldinu kl. 8:00 - ekki 9:00 eins og stendur í dreifibréfi!!  

Mig langar til að ítreka þrjá hluti:  

1) Í dreifibréfi komu fram rangar upplýsingar um tíma á partýlokum. Sækja þarf börn og allan farangur þeirra ekki seinna en kl. 8:00 um morguninn. Þetta verður ítrekað aftur við foreldra þegar þeir mæta með börn sín á svæðið í kvöld.  

2) Allir sem gista eiga að koma með dýnu, kodda, sæng eða svefnpoka og tannbursta. Þar sem við erum ansi mörg gengur ekki upp að koma með stórar dýnur nema fleiri en einn séu um sömu dýnuna.  

3) Þeir sem ekki ætla að gista fara heim kl. 01:00. Foreldrar þurfa að sækja þá sem ekki gista. Ef upp koma vandamál um miðja nótt eða einhver missir gistikjarkinn verður reynt eftir fremsta megni að leysa málið, en ef það reynist ekki mögulegt geta foreldrar átt von á símtali til að sækja barnið. Ég tel þó frekar ólíklegt að þessi staða komi upp.  

B.kv. Arnar S. Jónsson.
Arnar Snćberg Jónsson | 15. febrúar 2011 |

Styttist í Samfés

Nú styttist í að 8.-10. bekkur fari á Samféshátíðina í Reykjavík, en hún fer eins og venjulega fram fyrstu helgina í mars, 4.-6. mars. Nemendaráð og þátttakendur í starfinu hafa undanfarið komið fram með ýmsar hugmyndir um mögulega afþreyingu utan ballsins og söngkeppninnar og það er alveg á hreinu að það verður ógurlegt stuð í ferðinni!

Dagskrá og leyfisbréfum til undirskriftar verður dreift til þátttakenda og foreldra í þessari viku. Foreldrar eru hvattir til að kynna sér í þaula allt sem stendur á leyfisbréfinu þegar það kemur í hús. Sérstaklega ber þar að nefna nýja reglu um klæðaburð á Samfés, en einnig hvernig tekið verður á brotum varðandi neyslu á tóbaki, áfengi eða öðrum vímugjöfum. Ef slík brot koma upp fela þau í sér útilokun viðkomandi aðila frá atburðum og skemmtunum það sem eftir lifir ferðarinnar.

Meðal þess sem verður gert utan þess að fara á Samféshátíðina sjálfa er t.d. Laser-Tag í Kópavogi, Go-Kart í Garðabæ, bíóferð, diskókeila í Öskjuhlíðinni og skautar í Egilshöll. Stefnt er að því að leggja af stað frá Hólmavík um kl. 14:00 á föstudeginum og koma síðan heim um kvöldmatarleytið á sunnudegi. Félagsmiðstöðin greiðir ferðina niður um helming, en gera má ráð fyrir að hlutur hvers þátttakanda verði um 10.000 kr. sem er svipað og síðastliðin tvö ár.


Arnar Snćberg Jónsson | 08. febrúar 2011 |

Ţjóđlegt kvöld hjá 5.-7. bekk

Í kvöld, þriðjudagskvöldið 8. febrúar, frá kl. 19:30-21:00 verður félagsmiðstöðin Ozon opin fyrir 5.-7. bekk. Auglýst hefur verið innan skólans svokallað "Þjóðlegt kvöld" sem Nemendaráð hefur skipulagt í þaula. Í því felst að ekkert rafmagn verður notað, hvorki til að tengja græjur eða kveikja ljós og svo er stefnan að sem flestir mæti í lopafötum eða öðrum gamaldags klæðnaði.

Þá verður kveikt á kertum, smakkað á súrmat og öðrum kræsingum, spilað á gömlu góðu spilin og e.t.v. verður gripið í þjóðsögur eða Skólaljóðin!
Arnar Snćberg Jónsson | 01. febrúar 2011 |

Landshlutakeppnin tókst frábćrlega

Vestfjarðariðill í söngkeppni Samfés var haldinn á Hólmavík á föstudagskvöldið að viðstöddu miklu fjölmenni. Sennilega hafa verið ríflega 200 manns í félagsheimilinu þetta frábæra kvöld. Keppnin var bæði spennandi og skemmtileg en alls voru flutt 10 vönduð söngatriði. Agnes Sólmundsdóttir frá Þingeyri sigraði keppnina með glæsilegu atriði sem verður fram- lag félagsmiðstöðva á Vestfjörðum í landskeppni Samfés. Fjögur atriði voru frá félagsmiðstöðinni Ozon á Hólmavík og stóðu krakkarnir sig frábærlega þó að ekki hafi náðst verðlaunasæti að þessu sinni. 

Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin voru ekki af verri endanum; Kaupfélag Steingrímsfjarðar á Hólmavík gaf glæsileg leðurveski og Activity-spilið, Tónabúðin og Ozon gáfu Shure-míkrafóna og frá Nóa-Síríus komu níðþungir konfektkassar. Allir keppendur fengu afhendar rósir og verðlaunahafarnir blómvendi frá Ozon.

Ingibjörg Valgeirsdóttir, sveitarstjóri í Strandabyggð, hrósaði gestum sérstaklega fyrir sína þátttöku í viðtali við strandabyggd.is: ,,Áhorfendur eiga líka lof skilið en það kom mér skemmtilega á óvart að sjá fólk á öllum aldri fylla Félagsheimilið á Hólmavík. Eftir 10 ára starf með ungu fólki á höfuðborgarsvæðinu rættist gamall draumur um að sjá og upplifa kynslóðabilið hverfa á viðburðum ætluðum unglingum. Hér tekur öll fjölskyldan og allir íbúar Strandabyggðar þátt í lífi og starfi unglinganna, yngri og eldri systkini, foreldrar, ömmur, afar og aðrir áhugasamir Strandamenn.  Bilið sem við höfum of oft séð myndast milli fullorðinni og unglinga á samskonar atburðum er einhvern veginn ekki til staðar hér. Það er til fyrirmyndar".

Það er ljóst að þessi atburður hefur tekist frábærlega. Það er ekki síst hægt að þakka krökkunum í eldri deild Ozon, en þau unnu baki brotnu við undirbúning keppninnar alla vikuna. Þá ber einnig að þakka hljóðmanninum (og fyrrverandi Ozon-stjórnandanum) Bjarna Ómari Haraldssyni fyrir að stýra tökkum á nýja hljóðkerfinu, en hljóðið út í sal var hreint magnað miðað við þær erfiðu aðstæður sem eru til hljóðblöndunar í félagsheimilinu. Ekki má gleyma sviðsmönnunum, þeim Darra Hrannari Björnssyni, Friðrik Smára Mánasyni og Daníel Birgi Bjarnasyni. Þeir Darri og Daníel sáu einnig um diskótek eftir keppnina sem vakti upp dansgenin hjá gestum.

Umfjöllun og fleiri myndir frá keppninni má sjá á strandir.is

Arnar Snćberg Jónsson | 26. janúar 2011 |

Landshlutakeppni föstudaginn 28. janúar!!

Föstudaginn 28. janúar, klukkan 20:00, fer fram í Félagsheimilinu á Hólmavík úrslitakeppni í Vestfjarðarriðli söngkeppni Samfés. Þar munu 10 söngatriði frá Hólmavík, Ísafirði, Flateyri og Bolungarvík keppa um að komast í lokakeppni sem fram fer í Laugardagshöllinni, laugardaginn 5. mars. Eitt atriði verður valið um kvöldið af þriggja manna dómnefnd til að keppa í lokakeppninni, en þrjú efstu sætin fá vegleg verðlaun. Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir 1.-10. bekk, en 1000 krónur fyrir 16 ára og eldri. Frítt fyrir börn yngri en 5 ára. Sjoppa félagsmiðstöðvarinnar verður að sjálfsögðu á staðnum.  

Fjögur söngatriði koma frá félagsmiðstöðinni Ozon á Hólmavík. Það eru þær Brynja Karen Daníelsdóttir sem sigraði söngkeppni Ozon síðasta föstudag með lagið Svo smá, Andrea Messíana Heimisdóttir með frumsamda lagið og textann Leyndarmál, Sara Jóhannsdóttir með lagið Án þín og Gunnhildur Thelma Rósmundsdóttir sem mun flytja lagið Lítill drengur. Fjölmargir hljóðfæraleikarar úr hópi Ozon-krakka koma fram í atriðunum. Strandamenn eru sérstaklega hvattir til að mæta og hvetja sitt fólk til dáða á föstudaginn.

Það eru tómstundafulltrúi Strandabyggðar og unglingarnir í félagsmiðstöðinni Ozon sem sjá um framkvæmd og skipulagningu keppninnar sem er einn stærsti viðburður fyrir unglinga á Vestfjörðum. Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir og hvattir til að taka þátt í skemmtilegri stemmingu. Að keppni lokinni verður haldið diskótek fyrir 8.-10. bekk. Þar stjórna þeir DJ Danni og DJ Darri tökkum og rafmixi. Miðaverð á dansleikinn er krónur 500.
Arnar Snćberg Jónsson | 24. janúar 2011 |

Addaleikir á opnu húsi

Þá er komið að öðru opna húsinu hjá yngri deild félagsmiðstöðvarinnar Ozon á þessu ári, en það hefst kl. 19:30 þriðjudagskvöldið 25. janúar og stendur yfir til kl. 21:00 eins og venjulega. Þema kvöldsins eru svokallaðir Addaleikir, en þá lætur nýráðinn forstöðumaður miðstöðvarinnar ljós sitt skína með ýmsum furðulegum leikjum sem hann lærði á barnsaldri.

Stefnan hjá Nemendaráði og forstöðumanni hefur síðan verið tekin á að halda "þjóðlegt kvöld" þriðjudagskvöldið 8. febrúar, með tilheyrandi lopapeysum, rafmagnsleysi, rímum, kveðum, húslestri, súrmat, spilum, kertaljósum og almennri gleði :)
Arnar Snćberg Jónsson | 24. janúar 2011 |

Flöskusöfnun á miđvikudaginn!

Félagsmiðstöðin Ozon stendur fyrir flöskusöfnun meðal íbúa á Hólmavík miðvikudagskvöldið 26. janúar. Söfnunin hefst klukkan 20:00 og stendur fram eftir kvöldi. Söfnunin er eflaust kærkomið tækifæri fyrir marga til að losa sig við birgðir sem safnast hafa upp um jól og áramót.


Allur ágóði af söfnuninni rennur beint til starfsemi Félagsmiðstöðvarinnar Ozon.

 

Arnar Snćberg Jónsson | 24. janúar 2011 |

Eldri deild Ozon komin á Facebook

Félagsmiðstöðin Ozon


Félagsmiðstöðin Ozon er nú komin með Facebook-síðu. Síðan er fyrst og fremst ætluð þátttakendum í 8.-10. bekk auk þess sem foreldrar og forráðamenn unglinga í þessum bekkjum geta einnig fengið aðgang að síðunni. Tilgangur síðunnar er að mestu leyti að auðvelda það að koma á framfæri tilkynningum varðandi innra starf miðstöðvarinnar.

Rétt er að nefna strax að fésbókarsíða Félagsmiðstöðvarinnar Ozon kemur til með að taka mið af aldurstakmörkum Facebook-vefsins. Það þýðir að krakkar í 5.-7. bekk fá ekki aðgang að síðunni, en auglýsingum og tilkynningum til þeirra verður komið áfram eftir hefðbundnum leiðum.

Bestu kveðjur,
Arnar Snæberg Jónsson.
Arnar Snćberg Jónsson | 24. janúar 2011 |

Brynja Karen vann söngkeppni Ozon

Föstudagskvöldið 21. janúar var haldin bráðskemmtileg söngvakeppni félagsmiðstöðvarinnar Ozon í skólanum á Hólmavík. Flutt voru sex stórskemmtileg og vönduð atriði og síðan voru fjögur þeirra valin til áframhaldandi þátttöku í Vestfjarðakeppni Samfés. Sérvalin dómnefnd skipuð þeim Kristni Schram, Salbjörgu Engilbertsdóttur og Sigurróðs Þórðardóttur ákváðu hverjir hrepptu sætin fjögur. Veglegir vinningar voru í boði fyrir sigurvegarar.

Það var Brynja Karen Daníelsdóttir sem kom, sá og sigraði í keppninni, en hún flutti lagið Svo smá sem margir kannast eflaust við af sólóplötu Heiðu "okkar" Ólafs. Aðrir sem komust áfram voru Andrea Messíana Heimisdóttir með frumsamda lagið og textann Leyndarmál, Sara Jóhannsdóttir sem söng lagið Án þín með Trúbroti og Gunnhildur Thelma Rósmundsdóttir sem flutti lagið Lítill drengur sem Villi Vill gerði frægt um árið.

Landshlutakeppnin verður síðan haldin á Hólmavík föstudaginn 28. janúar, í félagsheimilinu. Keppnin hefst kl. 20:00. Sigurvegari þar kemst svo í Söngvakeppni Samfés á landsvísu, en hún fer fram laugardaginn 5. mars.

Jón Jónsson fréttaritari strandir.is var á staðnum og smellti af fullt af myndum af keppendum. Kíkið á það með því að smella hér.
Fyrri síđa
1
2Nćsta síđa
Síđa 1 af 2
Eldri fćrslur
Nemendur Atburđir
« Maí 2012 »
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nćstu atburđir

Vefumsjón