Skólaráđ 2019-2020
Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólastjóri hefur forgöngu um stofnun skólaráðs. Hann situr í skólaráði og stýrir starfi þess. Auk skólastjóra sitja í skólaráði tveir fulltrúar foreldra, tveir fulltrúar kennara, einn fulltrúi annars starfsfólks skólans, tveir fulltrúar nemenda og einn fulltrúi grenndarsamfélags eða viðbótarfulltrúi úr hópi foreldra valinn af öðrum fulltrúum skólaráðs. Staðgengill skólastjóra stýrir skólaráði í forföllum skólastjóra.
http://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/1157-2008
http://www.heimiliogskoli.is/wp-content/uploads/2017/06/Handb%C3%B3k-um-sk%C3%B3lar%C3%A1%C3%B0.pdf
Skólaráð Grunnskólans á Hólmavík
Skólaráð Grunnskólans á Hólmavík er samráðsvettvangur skólasamfélagsins um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar t.d. um skóladagatal, skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun og aðrar áætlanir sem gerðar eru um skólastarfið.
Skólaráð fær til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar sem kunna að verða á skólahaldi og starfsemi skólans áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist einnig almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.
Símanúmer og netföng fulltrúa í skólaráði
Fulltrúar nemenda: Október 2019
Fulltrúar foreldra: Október 2019
Fulltrúar kennara: Kolbrún Þorsteinsdóttir og Esther Ösp Valdimarsdóttir.
Fulltrúi almennra starfsmanna:Jóhanna G. Rósmundsdóttir
Fulltrúi grenndarsamfélags: Nicole Krysiak
Funda- og starfsáætlun skólaráðs Grunnskólans á Hólmavík
Uppfært október 2019