- Furðuleikar Sauðfjárseturs á Ströndum
verða á sínum stað á sunnudeginum! SKítkast, öskurkeppni, trjónubolti og fleira.
- Gísli Einarsson
skemmtir gestum á varðeldi á Hamingjudögum föstudagskvöldið 2.júlí kl 22:00, ásamt Rögnvaldi gáfaða. Þeir félagar munu meðal annars standa fyrir uppistandi og leyfa gestum að þreyta inntökupróf í laglausa kórinn.
- Hljómsveitin Hraun
Gleði og partýsveitin Hraun leikur á dansleik á laugardagskvöldi á Hamingjudögum á Hólmavík 2010.
- Hólmavíkurkirkja
er tvímælalaust með fallegustu kirkjum landsins og einnig staðsetningin. Þar verður léttmessa á sunnudagsmorgni á Hamingjudögum. Sr Sigríður Óladóttir messar og flutt verður létt og skemmtileg tónlist.
- Jón á Berginu
Jón H Halldórsson frá Hrófbergi heldur sína fyrstu tónleika á Hamingjudögum í ár. Ókeypis inn og frábær upphitun fyrir ball!
- Raddbandafélag Reykjavíkur
undir stjórn Steingríms Þórhallssonar, verður með tónleika í Bragganum föstudagskvöldið 2. júlí kl 20 ásamt Svavari Knúti. Miðaverð kr 1500
- Rögnvaldur gáfaði
sem margir þekkja úr hljómsveitinni Hvanndalsbræðrum, mun skemmta gestum við varðeldinn, ásamt Gísla Einarssyni.
- SVAVAR KNÚTUR OG RADDBANDAFÉLAG REYKJAVÍKUR
verða með tónleika í Bragganum föstudaginn 2. júlí kl 20, ásamt Raddbandafélagi Reykjavíkur. Miðaverð kr 1500.
- Árstíðir-hljómsveitir
Hljómsveitin Árstíðir kemur fram ásamt Svavari Knúti og Helga Val fram á tónleikum í Hólmavíkurkirkju á fimmtudegi um Hamingjudaga. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferðalaginu "Hver á sér fegra föðurland."
- Bikarmót HSS í knattspyrnu
Fyrri umferð bikarmóts HSS í knattspyrnu fer fram á Hamingjudögum.
- Brynjólfur Einarsson-Bowen o.fl.
Brynjólfur Einarsson ætlar að bjóða upp á bowen, lífheilun og dáleiðslu á Hamingjudögum.
- Furðuleikar
Furðuleikar Sauðfjársetursins í Sævangi eru óvenjuleg íþróttahátíð fyrir alla fjölskylduna. Hestar, blöðrur og andlitsmálning á staðnum.
- Hamingjumót í golfi
Hamingjumót Hólmadrangs í golfi fer fram á sunnudegi um Hamingjudaga. Upplýsingar um golfklúbbinn og Skeljavíkurvöll er að finna á golf.is
- Helgi Valur tónlistarmaður
Helgi Vlalur ásamt Árstíðum kemur fram á tónleikum í Hólmavíkurkirkju á fimmtudegi. Tónleikarnir eru hluti af ferðalaginu "Hver á sér fegra föðurland."
- Hljómsveitin Von
Hljómsveitin Von frá Sauðárkróki mun leika á dansleik í Félagsheimilinu á Hólmavík á Hamingjudögum.
- Hrönn spámiðill
Hrönn spámiðill spáir fyrir gestum Hamingjudaga. Hún verður með aðstöðu að Höfðagötu 7 á Hólmavík og býður upp á 15 mínútna spá gegn 1500 kr gjaldi.
- Laser tag
Á Hamingjudögum verður í boði laser tag á fótboltavellinum við Brandskjól (innan við tjaldsvæðin og sundlaugina.
- Mótorkrossmót og mótorkrossbraut
Mótorkrossmót verður haldið í Skeljavíkurbraut á föstudegi. Einnig er hægt að kaupa aðgang í brautina í söluskála KSH og Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík.
- Sjóstangveiði og sigling í Grímsey
Sjóstangveiði með Sundhana frá Hólmavík og sigling í Grímsey frá Drangsnesi.
- Svavar Knútur
Svavar Knútur ásamt Árstíðum og Helga Val heldur tónleika í Hólmavíkurkirkju sem eru hluti af tónleikaferðalaginu "Hver á s´r fegra föðurland."
- Vestfjarðavíkingurinn
Keppnisgrein í Vestfjarðavíkingnum fer fram á sundlauginni á Hólmavík á fimmtudegi.