Hamingjulögin
Fyrstu fjögur árin sem Hamingjudagar voru haldnir var efnt til lagasamkeppni um Hamingjulagið.
Ekki var haldin lagasamkeppni árið 2009.
Lagakeppni var auglýst í ár og var hún haldin 19. maí sl. Aðeins tvö lög bárust í keppnina og var keppnin því sameinuð mikilli tónlistarhátíð sem Tónskólinn á Hólmavík stóð fyrir. Ásdís Jónsdóttir sigraði þá keppni en lagið sungu ásamt Ásdísi þær Salbjörg Engilbertsdóttir og Hlíf Hrólfsdóttir. Vegna mikilla anna hjá höfundi, flytjendum og uppstökustjóra hefur ekki tekist að koma laginu í spilun en það er væntanlegt nú um helgina eða í næstu viku.Textar þeirra laga sem hafa unnið keppnina fram til þessa eru birtir hér á síðunni.
Árið 2008 sigraði Ég vil dansa, lag og texti eftir Ásdísi Jónsdóttur á Hólmavík. Salbjörg Engilbertsdóttir söng lagið og Stefán S. Jónsson lék undir við upptökur.
Ég vil dansa sigurlagið
Lag og texti Ásdís Jónsdóttir
Norður Strandir ég fer og ég komin er hér,
til að syngja og dansa eins og sést.
Það er sólskin í dag, syngjum hamingjulag,
það er sannað að Hólmavík er best.
Þessir hamingjudagar og hamingjunætur,
hittast vinir og allir skemmta sér.
Þá er lundin svo ör þá er sveifla og fjör,
þá er dansinn sú besta skemmtun hér.
Ég vil dansa við þig, meðan nóttin er ung,
uppí Bragga er alltaf líf og fjör.
Þar mun tónlistin óma er dagurinn dvín,
ég vil dansa uns morgunsólin skín.
Varðeld við tendum og treystum vinabönd,
meðan lognalda leikur blítt við sand.
Þá er söngvarnir hljóma við leiðumst hönd í hönd,
þá er Hólmavík okkar draumaland.
Ég vil dansa við þig, meðan nóttin er ung,
uppí Bragga er alltaf líf og fjör.
Þar mun tónlistin óma er dagurinn dvín,
ég vil dansa uns morgunsólin skín.
Hamingjulag ársins 2007 var lagið Hólmavík er best. Lag og texti eru eftir Arnar S. Jónsson og hann flutti lagið sjálfur.
Hólmavík er best
Lag: Arnar S. Jónsson
Texti: Arnar S. Jónsson
Í rokinu í Grindavík er alltaf soldið kalt,
í sjoppunni á Kópaskeri er ekki til neitt malt.
Á Selfossi og Hveragerði jarðskorpan er þunn
og sundlaugin á Ísafirði, hún er alltof grunn!
Ég ráfaði um Raufarhöfn í rokinu um hríð,
í Reykjavík er ofbeldi og innbrot eru tíð.
Á vertíð úti í Vestmannaeyjum fann það fyrir rest
að búa heima á Hólmavík, það væri alltaf best
Hólmavík, Hólmavík,
hamingja og rómantík.
Hólmavík, Hólmavík,
hún er engu öðru lík.
Á Húsavík þeir bráðum munu álver hafa byggt,
í Eyjafirði er alltaf soldil kúadellulykt.
Hvert sem ég mun flakka, já, hvert sem ég nú fer
mun hamingjan á Hólmavík búa í hjarta mér.
Hólmavík, Hólmavík...
Nú safnast allir saman og hamingjan við völd
og endalaust við skemmtum okkur - alveg fram á kvöld.
Það rignir reyndar aðeins og sólin ekki sést
það skiptir ekki máli því Hólmavík er best.
Hólmavík, Hólmavík...
Daníel Birgir Bjarnason er höfundur lagsins Á hamingjudögum sem valið var hamingjulagið 2006. Textinn er einnig eftir Daníel en flytjendur eru þau Aðalheiður Lilja Bjarnadóttir og Bjarni Ómar Haraldsson. Það má taka fram að Daníel var einungis 12 ára þegar hann samdi lagið.
Hamingjudagar á Hólmavík
Lag: Daníel Birgir Bjarnason
Texti: Daníel Birgir Bjarnason
D G D
Allir kátir á Hamingjudögum
G D
hamingju má finna í hamingjulögum
G D
Hamingjan sanna hér er engu lík
G D
Hvernig sem hún reynist þér sem slík
Hm A A7 D
á Hamingjudögum á Hólmavík
D G D
Húsin á staðnum líta út sem höll
G D
Fjöllin minna þig á álfa og tröll
G D
Brosa allir finna það á sér
G D
að hamingjuna er að finna hér
Hm A A7 D
á Hamingjudögum á Hólmavík
G D
Í Braggann við förum á Hamingjudögum
G D
Syngjum svo saman það er svo gaman
G D
Leiðumst í lundinn á ástarfundinn
Em A7 D
á Hamingjudögum á Hólmavík
D G D
Í hamingjunnar litum skreytum allt
G D
og elskum hvert annað þúsundfallt
D G D
Appelsínugul, gul, rauð og blá
G D
Allt er miklu líflegra þá
Hm A A7 D
á Hamingjudögum á Hólmavík
D G D
Kálfanesborgirnar eru okkar stolt
G D
Að labba þær reynist okkur hollt
G D
Drangajökull rís úr bláum sæ
G D
Sólin skín við öllum í þessum bæ
Hm A A7 D
á Hamingjudögum á Hólmavík
A
Mest er þó gaman þegar allir eru saman
D
Fullt af fólki að njóta þess
A
léttir í lundu á góðri stundu
Allir lausir við sitt stress
G D
Í Braggann við förum á Hamingjudögum
G D
Syngjum svo saman það verður gaman
G D Hm
Leiðumst í lundinn á ástarfundinn
Em A7 D
á Hamingjudögum á Hólmavík
G D
Í Braggann við förum á Hamingjudögum
G D
Dönsum svo saman það er svo gaman
G D Hm
Leiðumst í lundinn á ástarfundinn
E A7 D Hm
á Hamingjudögum á Hólmavík
E A7 D
á Hamingjudögum á Hólmavík
Söngur: Aðalheiður Lilja Bjarnadóttir og Bjarni Ómar Haraldsson
Lagið sem sigraði fyrsta árið, 2005, er eftir Kristján Sigurðsson við texta Ásgerðar Ingimarsdóttur. Lagið nefnist Hamingjudagar á Hólmavík.
Hamingjudagar á Hólmavík
Lag: Kristján Sigurðsson
Texti: Ásgerður Ingimarsdóttir
Vor í bænum,
syngur í blænum.
Öll veröldin lifnar á ný.
Vorblómin vakna,
fjötrarnir rakna
vorgolan kyssir þig hlý.
Og gleðin þig gagntekur
gjörvallan daginn.
Nú gengur þér allt í haginn.
Ég sé bláan sjó.
Ég sé fugl í mó.
Ég sé bátana bruna úr höfn.
Viltu koma og sjá,
hvað aldan er blá.
Þegar bátarnir bruna úr höfn.
Upp í borgum
þú gleymir sorgum
og horfir á blánandi fjöll.
Sjórinn farinn
ei hlíð fannbarin
því veröld er vaknandi öll.
Og fjörðurinn svo fagurlega skín.
Og fuglarnir koma á hrieðrin sín.
Þeir kveðjur bera til þín.
Ég sé bláan sjó.
Ég sé fugl í mó.
Ég sé bátana bruna úr höfn.
Viltu koma og sjá,
hvað aldan er blá.
Þegar bátarnir bruna úr höfn.
Albjart á nóttu,
líður að óttu
og allt er kyrrt og hljótt.
Hólmavík sefur,
gluggana hefur
galopna um miðja nótt.
En hjá stafni á Galdrasafni
Siggi fremur seið.
Já, einmittum óttuskeið.
Ég sé bláan sjó.
Ég sé fugl í mó.
Ég sé bátana bruna úr höfn.
Viltu koma og sjá,
hvað aldan er blá.
Þegar bátarnir bruna úr höfn.
Hamingjudagar,
hamingjunætur,
á Hólmavík við hittumst á ný.
Góðir synir,
góðar dætur.
Við gleðjumst og fögnum yfir því.
Og hamingjan hossar okkur öllum,
hvort hafst er við í koti eða höllum.
Hvergi finnst gleðin slík.
(nema á Hólmavík).
Söngur: Kristján Sigurðsson
Bakrödd: Lára Guðrún Agnarsdóttir
Hljóðfæraleikur og útsetning: Vilhjálmur Guðjónsson
