Stefán Gíslason hleypur Hamingjuhlaupið 2009 og 2010
Hamingjuhlaupið 2010
Stefán Gíslason umhverfisfræðingur í Borgarnesi og fyrrum sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps hleypur Hamingjuhlaupið öðru sinni í ár. Stefán bíður alla velkomna að slást í för með sér, alla leið eða hluta úr leiðinni. Eftirfarandi er tímaáætlun hlaupsins:
Lagt af stað frá vegamótum Vestfjarðavegar (60) og Djúpvegar (61) neðan við Ingunnarstaði kl. 10:45.
Hæstu hæðir (Þröskuldar) kl. 11:45.
Hrófá kl. 13:15.
Hólmavík kl. 14:00.
Saga Hamingjuhlaupsins
Í aðdraganda Hamingjudaga 2009 kom Stefán að máli við framkvæmdastjóra með þá skemmtilegu hugmynd að hlaupa Hamingjuhlaup sem endaði á bæjarhátíðinni. Var hugmyndinni tekið fagnandi og Stefán bauð áhugasömum að taka þátt með sér. Stefán hljóp frá Drangsnesi til Hólmavíkur á laugardagsmorgni, alls um 34,5 km. Stefán og félagar hans lögðu af stað frá bryggjunni á Drangsnesi kl 10:03 á laugardagsmorgni og voru komnir í Klifstún á Hólmavík þegar útiskemmtun þar hófst kl 13:30.
Ýmsir slógust í för með Stefáni og vakti framtakið verðskuldaða athygli.
Í ár áformar Stefán að hlaupa frá vegamótum í Reykhólasveit, þar sem beygt er upp á hinn nýja veg um Þröskulda. Vegalengdin er um 31 kílómetrar. Stefán bíður alla velkomna að slást í för með sér, alla leið eða hluta úr leiðinni.
