Hamingjuhlaupiđ 2012 frá Trékyllisvík til Hólmavíkur
29. ágúst 2011 | Arnar Snćberg Jónsson
Það er ekkert verið að tvínóna við hlutina þegar Hamingjudagar eru annars vegar, en fyrsti dagskrárliður fyrir árið 2012 hefur þegar verið negldur niður. Það er Hamingjuhlaupið margfræga sem hefur vaxið og dafnað með hverju ári, enda geta allir tekið þátt og hlaupið í takt við eigin getu. Að sögn Stefáns Gíslasonar, skipuleggjanda og upphafsmanns hlaupsins, mun hlaupið 2012 hefjast við Minja- og handverkshúsið Kört við Árnes í Trékyllisvík, öðrum þræði til heiðurs sveitarstjóra Strandabyggðar, Ingibjörgu Valgeirsdóttur, sem er eins og margir vita frá Árnesi. Hlaupið í heild sinni er um 53 km og gæti tekið rúmar 7 klukkustundir að sögn Stefáns.
...
Meira
...
Meira
