Skólastefna Grunnskólans á Hólmavík

Grunnskólinn á Hólmavík er einsetinn tæplega 90 nemenda skóli. Meginmarkmið skólastarfsins í Grunnskólanum á Hólmavík er að stuðla að góðu andrúmslofti þannig að öllum börnunum líði vel í skólanum. Mikilvægt er að brugðist sé við þörfum nemandans og að hann fái viðfangsefni við hæfi sem reynir á hann og gerir kröfur til hans. Við leggjum mikið upp úr góðu sambandi og samstarfi við foreldra og vinnum að markmiðum aðalnámskrár með áherslu á list- og verkgreinar þar sem tónlist og leiklist spila stórt hlutverk. Við flöggum Grænfánanum með stolti og viljum efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Við leitumst við að skapa hvetjandi, skemmtilegt og fjölbreytt námsumhverfi, leita eftir hæfileikum og styrk hvers nemanda og stuðla að því að hver nemandi fái að njóta sín sem einstaklingur og í hóp og temji sér góða framkomu og góð vinnubrögð. Við viljum að upplýsingar um skólastarfið séu aðgengilegar foreldrum og metum jákvæða og uppbyggjandi gagnrýni mikils. Skólinn okkar er sameiginlegur vinnustaður margra ólíkra einstaklinga sem sýna hverjir öðrum hlýhug og umhyggju. Með það í huga vonumst við til að geta stuðlað að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers nemanda þannig að hann fari frá okkur sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.
Nemendur Atburđir
« Maí 2012 »
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nćstu atburđir

Vefumsjón