Um skólann okkar

Grunnskólinn á Hólmavík
Skólabraut 20-22
510 Hólmavík

Sími: 451-3129
Netfang:
grunnskolinn@holmavik.is

Grunnskólinn á Hólmavík er einsetinn tæplega 90 nemenda skóli sem leggur áherslu á tónlist og listgreinar í skólastarfinu. Við viljum að skólinn okkar einkennist af góðu foreldrasamstarfi, gagnkvæmri virðingu og vilja nemenda og starfsmanna þar sem áhersla er lögð á sveigjanleika og fjölbreytta kennslu við hæfi allra nemenda. Við flöggum nú Grænfánanum með stolti. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum.

Við skólann starfa kennarar, skólastjóri, aðstoðarskólastjóri, sérkennari, iðjuþjálfi, stuðningsfulltrúar, tveir skólaliðar og sem sjá m.a. um störf ritara, ræstingu og gæslu, skólabílstjóri, bókasafnsvörður og starfsmenn í frístundaheimilinu Skólaskjóli. Við erum mjög stolt af samhentum, þéttum og fjölbreyttum starfsmannahópi skólans og okkar frábæru nemendum sem eru í 1.- 10. bekk.  Að loknum skóladegi gefst öllum nemendur kostur á að snæða hádegisverð í mötuneyti skólans á Café Riis og nemendur í 1.- 5. bekk geta dvalið í frístundaheimili okkar Skólaskjóli til klukkan fjögur.
 

Tónskólinn á Hólmavík er samrekinn með Grunnskóla Hólmavíkur og á undanförnum árum hefur verið mikill áhugi hjá nemendum Grunnskólans fyrir tónlistarnámi og hefur hlutfall þeirra farið allt upp í 80%. Í ár eru um 70 nemendur Grunnskólans sem stunda hljóðfæranám auk náms í tónfræðigreinum. Fjórir tónlistarkennarar eru starfandi við skólann og kenna nemendum á píanó, orgel, harmonikku, blokkflautu, gítar, rafgítar, rafbassa, trommur og söng. Þessi mikli tónlistaráhugi og staðsetning Tónskólans innan veggja Grunnskólans gerir það að verkum að heildarmynd skólans er í senn lífleg og fjörug þar sem listagyðjan fær að njóta sín í bland við hefðbundið skólastarf.


Félagsmiðstöðin Ozon er einnig staðsett innan veggja Grunnskólans og heldur Arnar Snæberg Jónsson tómstundafulltrúi Strandabyggðar utan um starfið ásamt nemendaráði Grunnskólans. Innan félagsmiðstöðvarinnar fer fram hefðbundið starf s.s. opin hús tvisvar í viku og viðburðir í tengslum við það.


Íþróttakennsla skólans fer fram í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík sem reist var vorið 2004. Þar iðka nemendur íþróttir í stórum og vel útbúnum íþróttasal og sundlaug. Mikið samstarf er á milli Grunnskólans og þeirra íþróttahreyfinga sem eru á staðnum. 

Nemendur Atburđir
« Maí 2012 »
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nćstu atburđir

Vefumsjón