Sérkennsla og stuđningur
Vegna sérkennslumála eða sérkennsluúrræða er rétt að snúa sér beint til Jóhönnu Hreinsdóttur, sem hefur umsjón með sérkennslumálum skólans eða Hildar Guðjónsdóttur, aðstoðarskólastjóra sem er yfir málaflokknum í umboði skólastjóra.
Hvað er sérkennsla?
Sérkennsla er það þegar nemendur fá sérstaka námsaðstoð í tilteknum
námsgreinum eða almennt, um lengri eða skemmri tíma. Sérkennsla felur í sér
verulega breytingu á námsmarkmiðum, námsefni, námsaðstæðum og/eða
kennsluaðferðum miðað við það sem öðrum nemendum á sama aldri er boðið upp á. Sérkennari metur hvaða form er heppilegast í hverju tilviki fyrir
sig í samráði við umsjónarkennara. Enginn nemandi fær sérkennslu nema farið
hafi verið yfir mál hans í nemendaverndarráði, í samráði við foreldra og með
samþykki þeirra. Fyrirkomulag sérkennslu
Sérkennsla er eitt af námstilboðum skólans til að mæta þörfum nemenda. Hún felur í sér breytingu á námsaðstæðum, námsefni, námsmarkmiðum og/eða kennsluaðferðum. Sérkennslan er skipulögð til lengri eða skemmri tíma eftir þörfum viðkomandi nemanda og fer ýmist fram innan eða utan almennra bekkjardeilda. Við skipulag sérkennslu í skólanum er unnið eftir reglugerð um sérkennslu.Í reglugerð um sérkennslu segir:
Sérkennsla felur í sér verulega breytingu á námsmarkmiðum, námsefni, námsaðstæðum og/eða kennsluaðferðum miðað við það sem öðrum nemendum á sama aldri er boðið upp á. Sérkennsla er skipulögð til lengri eða skemmri tíma eftir þörfum nemandans, jafnvel alla skólagöngu hans. Í sérkennslu felst m.a.: Gerð rökstuddrar námsáætlunar fyrir nemendahóp eða hvern einstakling sem byggð er á upplýsingum um heildaraðstæður nemanda og á athugun og mati á stöðu hans í námi og þroska. Tilgreind skulu langtíma- og skammtímamarkmið með kennslunni. Sérkennsla er veitt einstaklingum eða hópum. Hún getur verið bundin við afmarkaða þætti náms eða almenn námsaðstoð og byggist skipulag og inntak hennar á greiningu og mati á stöðu nemenda og þörfum þeirra. Sérkennslutímum er skipt milli nemenda í samræmi við þarfir þeirra og endurskoðun fer fram nokkrum sinnum á ári. Í sérkennslu fer reglulega fram mat á stöðu nemenda. Framhald sérkennslunnar er skipulagt í samræmi við niðurstöðu matsins. Talsverður sveigjanleiki er á fjölda nemenda í sérkennslu og fer það eftir þörf og áherslum hverju sinni. Þegar um er að ræða nemendur með miklar sérþarfir eru haldnir reglulegir fundir með þeim aðilum sem skipuleggja og vinna sameiginlega að námi nemanda. Einnig eru haldnir reglulega fundir með foreldrum/forráðamönnum.
