Sérfrćđiţjónusta
Frá og með skólaárinu 2011 - 2012 hefur Nemendaverndarráð Grunnskólans á
Hólmavík það hlutverk að samræma skipulag og framkvæmd þjónustu við nemendur þegar kemur að þjónustu sérfræðinga vegna greininga og námsvanda. Ráðið er skólastjóra til aðstoðar
við gerð og framkvæmd áætlana um sérstaka aðstoð við nemendur.
Nemendaverndarráð sér einnig um skipulagningu á sérkennslu skólans, skiptingu tíma
milli nemenda og hefur frumkvæði að allri umfjöllun um sérþarfir nemenda í
skólanum.
Nemendur og foreldrar njóta nú sérfræðiráðgjafar þar sem þjónusta sérfræðings fer fram hverju sinni. Þar getur verið um að ræða að þjónustan sé veitt á Hólmavík s.s. innan skólans eða sé á hendi félagsþjónustu. <þjónustan getur farið fram í gegnum fjarfundarbúnað, símleiðis eða með heimsóknum á starfsstöðvar þeirra sérfræðinga sem vinna mál fyrir hönd skólans.
Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel. Áberandi er að tíminn til að fá þjónustu sérfræðings og síðan í framhaldinu eftir greingarniðurstöðum hefur styst verulega með þessu nýja fyrirkomulagi. Þá bendir flest til að gæði sérfræðiþjónustu hafi aukist verulega þar sem nú er leitað til sérfræðinga sem tilheyra ákveðnu sérsviði sem fer saman við ætlaðan vanda barns.