Sérfrćđiráđgjöf
Frá og með skólaárinu 2011 - 2012 hefur Nemendaverndarráð Grunnskólans á
Hólmavík það hlutverk að samræma skipulag og framkvæmd þjónustu við nemendur varðandi sérfræðiþjónustu og er ráðið skólastjóra til aðstoðar
við gerð og framkvæmd áætlana um sérstaka aðstoð við nemendur.
Nemendaverndarráð sér um skipulagningu á sérkennslu skólans, skiptingu tíma
milli nemenda og hefur frumkvæði að allri umfjöllun um sérþarfir nemenda í
skólanum.
Nemendur og foreldrar njóta nú sérfræðiráðgjafar þar sem þjónusta sérfræðings fer fram hverju sinni. Þar getur verið um að ræða að þjónustan sé veitt á Hólmavík s.s. innan skólans eða á hendi félagsþjónustu , í gegnum fjarfundarbúnað, símleiðis eða með heimsóknum á starfsstöðvar þeirra sérfræðinga sem vinna mál fyrir hönd skólans.
Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel. Áberandi er að tíminn sem beðið er eftir að fá þjónustu sérfræðings og síðan í framhaldinu eftir greingarniðurstöðum styst verulega með þessu nýja fyrirkomulagi. Þá bendir flest til að gæði sérfræðiþjónustu hafi aukist verulega þar sem nú er leitað eftir sérfræðiþjónustu sem tilheyrir ákveðnu sérsviði eða að sérfræðingar sem vinna mál séu með sértækari menntun sem fer saman við vanda barns.