Sérfrćđiţjónusta

Frá og með skólaárinu 2011 - 2012 hefur Nemendaverndarráð Grunnskólans á Hólmavík það hlutverk að samræma skipulag og framkvæmd þjónustu við nemendur þegar kemur að þjónustu sérfræðinga vegna greininga og námsvanda.  Ráðið er skólastjóra til aðstoðar við gerð og framkvæmd áætlana um sérstaka aðstoð við nemendur. Nemendaverndarráð sér einnig um skipulagningu á sérkennslu skólans, skiptingu tíma milli nemenda og hefur frumkvæði að allri umfjöllun um sérþarfir nemenda í skólanum.

Nemendur og foreldrar njóta nú sérfræðiráðgjafar þar sem þjónusta sérfræðings fer fram hverju sinni. Þar getur verið um að ræða að þjónustan sé veitt á Hólmavík s.s. innan skólans eða sé á hendi félagsþjónustu. <þjónustan getur farið fram í gegnum fjarfundarbúnað, símleiðis eða með heimsóknum á starfsstöðvar þeirra sérfræðinga sem vinna mál fyrir hönd skólans.

Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel. Áberandi er að tíminn til  að fá þjónustu sérfræðings og síðan í framhaldinu eftir greingarniðurstöðum hefur styst verulega með þessu nýja fyrirkomulagi. Þá bendir flest til að gæði sérfræðiþjónustu hafi aukist verulega þar sem nú er leitað til sérfræðinga sem tilheyra ákveðnu sérsviði sem fer saman við ætlaðan vanda barns.   


Sérfrćđiráđgjöf

Frá og með skólaárinu 2011 - 2012 hefur Nemendaverndarráð Grunnskólans á Hólmavík það hlutverk að samræma skipulag og framkvæmd þjónustu við nemendur varðandi sérfræðiþjónustu og er ráðið skólastjóra til aðstoðar við gerð og framkvæmd áætlana um sérstaka aðstoð við nemendur. Nemendaverndarráð sér um skipulagningu á sérkennslu skólans, skiptingu tíma milli nemenda og hefur frumkvæði að allri umfjöllun um sérþarfir nemenda í skólanum.

Nemendur og foreldrar njóta nú sérfræðiráðgjafar þar sem þjónusta sérfræðings fer fram hverju sinni. Þar getur verið um að ræða að þjónustan sé veitt á Hólmavík s.s. innan skólans eða á hendi félagsþjónustu , í gegnum fjarfundarbúnað, símleiðis eða með heimsóknum á starfsstöðvar þeirra sérfræðinga sem vinna mál fyrir hönd skólans.

Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel. Áberandi er að tíminn sem beðið er eftir að fá þjónustu sérfræðings og síðan í framhaldinu eftir greingarniðurstöðum styst verulega með þessu nýja fyrirkomulagi. Þá bendir flest til að gæði sérfræðiþjónustu hafi aukist verulega þar sem nú er leitað eftir sérfræðiþjónustu sem tilheyrir ákveðnu sérsviði eða að sérfræðingar sem vinna mál séu með sértækari menntun sem fer saman við vanda barns.   


Komur sérfrćđinga

18. október
Önnur heimsókn sérfræðinganna okkar, þeirra Ásþórs Ragnarssonar sálfræðings og Elmars Þórðarsonar talmeinafræðings, verður mánudaginn 18. október nk. Vinsamlega hafið samband við umsjónarkennara eða fulltrúa sérkennslu þær Hrafnhildi Þorsteinsdóttur eða Jóhönnu Hreinsdóttur til að fá nánari upplýsingar eða panta tíma.

16. september
Fyrsta heimsókn sérfræðinganna okkar, þeirra Ásþórs Ragnarssonar sálfræðings og Elmars Þórðarsonar talmeinafræðings, verður fimmtudaginn 16. september nk. Vinsamlega hafið samband við umsjónarkennara eða fulltrúa sérkennslu þær Hrafnhildi Þorsteinsdóttur eða Jóhönnu Hreinsdóttur til að fá nánari upplýsingar eða panta tíma.
Nemendur Atburđir
« Febrúar 2012 »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Nćstu atburđir

Vefumsjón