Um nemendaverndarráđ
Hlutverk nemendaverndarráðs Grunnskólans á Hólmavík er að samræma skipulag og framkvæmd þjónustu við nemendur varðandi heilsugæslu, námsráðgjöf og sérfræðiþjónustu og vera skólastjóra til aðstoðar við gerð og framkvæmd áætlana um sérstaka aðstoð við nemendur. Nemendaverndarráð sér um skipulagningu á sérkennslu skólans, skiptingu tíma milli nemenda og hefur frumkvæði að allri umfjöllun um sérþarfir nemenda í skólanum.
Nemendaverndarráð Grunnskólans á Hólmavík er skipað til eins árs í senn. Á skólaárinu 2011 - 2012 eiga eftirtaldir fulltrúar sæti í nemendaverndarráði: Aðstoðarskólastjóri, sem jafnframt er formaður, fulltrúi sérkennslu, skólahjúkrunarfræðingur og Félagsmálastjóri Stranda- og Reykhólahrepps.
NÁNAR UM NEMENDAVERNDARRÁÐ GRUNNSKÓLANS Á HÓLMAVÍK
TILVÍSUN VEGNA SÉRFRÆÐI- OG SÉRKENNSLUÞJÓNUSTU
