Skólaskjól

Starfsemi Skólaskjóls felst í því að bjóða upp á lengda viðveru fyrir börn úr 1.-4. bekk Grunnskólans á Hólmavík alla hefðbundna skóladaga frá kl. 14:00-16:00 á starfstíma skólans samkvæmt útgefnu skóladagatali. Öll börn eigi kost á þjónustu Skólaskjóls óháð getu þeirra, þroska eða fötlun. Við leggjum áherslu á að starfið sé skipulagt þar sem starfsmenn og börn leitist við að móta gott, heimilislegt og þægilegt andrúmsloft sem einkennist af virðingu og leikgleði. Í Skólaskjóli er boðið upp á síðdegishressingu kl. 15:00. Þessa þjónustu greiða forráðamenn fyrir samkvæmt gjaldskrá Strandabyggðar. Starfsmenn Skólaskjóls eru þau Alda Guðmundsdóttir og Steinar Ingi Gunnarsson en þau eru einnig stuðningsfulltrúar við skólann.

Nemendur Atburđir
« Febrúar 2012 »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Nćstu atburđir

Vefumsjón