Hvađ er saft
SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni, er vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Verkefnið er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB. Samningsaðili við ESB er Heimili og skóli - landssamtök foreldra, sem sér um að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins að öllu leyti fyrir Íslands hönd.
Heimili og skóli er í samstarfi við önnur lönd í Evrópu og deilir með þeim upplýsingum, aðferðafræði og þekkingu. Markmiðið er að til verði sameiginlegur evrópskur sjóður þekkingar og aðferðafræði á þessu sviði sem styður hið jákvæða og hamlar gegn neikvæðum hliðum upplýsingatækninnar.
Verkefnastjórar
Í verkefnastjór SAFT sitja Guðberg K. Jónsson, formaður; Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla; Olga Möller, framkvæmdarstjóri Heimilis og skóla; Guðni Olgeirsson, Menntamálaráðuneytið; Sólveig Jakobsdóttir, Menntavísindasvið, Háskóli Íslands; Jenný Ingudóttir, Lýðheilsustöð; Jóna Sverrisdóttir og Ólafur Elínarson, Capacent Gallup.
Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum
Til hvers er SAFT?
- Að hanna og framkvæma markvisst vakningarátak um örugga og ábyrga notkun á Netinu og tengdum miðlum.
- Að efla vitund um hvernig hægt er að njóta Netsins og nýrra miðla á öruggan, jákvæðan, skemmtilegan og fræðandi hátt.
Markhópar
- Börn og unglingar
- Foreldrar
- Skólakerfið
- Netþjónustuaðilar
Áherslur
- Siðferði á netinu
- Tölvuleikir
- Persónuvernd
- Gagnrýnin netnotkun
- Farsímaöryggi
Leiðir
- Dreifing kennsluefnis í grunnskóla og viðbætur við það sem fyrir er á þessari vefsíðu.
- Fræðsla meðal unglinga, m.a. með jafningjafræðslu.
- Söfnun og dreifing upplýsinga t.d. um notkun tölvuleikja meðal barna, um hvort munur er á notkun kynjanna á Netinu og nýjum miðlum og um mismunandi notkun þessara miðla í eldri og yngri hópum barna.
- Markvisst fræðslu- og upplýsingaátak fyrir foreldra svo þeir verði betur í stakk búnir til að fræða börn sín og njóta Netsins og nýrra miðla með þeim.
- Víðtækt samstarf - samræmt átak á landsvísu við aðila innan stjórnsýslunnar, þá sem koma að menntun og tómstundastarfi barna og unglinga, netþjónustuaðila, forvarnaraðila, foreldra, fjölmiðla og börn og unglinga
Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
