Jólaföndur 2011
Jólaföndur foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík verður með breyttu sniði í ár. Að þessu sinni verður jólaföndrið haldið í Félagsheimili Strandabyggðar mánudaginn 28. nóvember kl 18-20.
Í ár verður boðið upp á að kaupa jólaskraut úr keramik sem nemendur og foreldrar geta málað á föndurkvöldinu. Einnig er nemendum velkomið að taka með sér efni til að gera jólakort og fleira. Nánari upplýsingar um jólaföndrið verður sent þegar nær dregur.
Að sjálfsögðu hvetjum við alla nemendur, foreldra, systkini og ömmu og afa til að taka daginn frá, njóta skemmtilegra stunda með nemendum og styrkja einnig Danmerkurfara sem ætla að sjá um kaffisöluna í ár.
Sjáumst hress og mætum í jólaskapi!
Bestu kveðjur,
Foreldrafélag Grunnskólans á Hólmavík
