Bekkjarkvöld, samráđsfundir og vinahópar

Nýlega hittist ný stjórn foreldrafélags grunnskólans. Í framhaldinu var ákveðið að efla samstarf við bekkjafulltrúa og hvetja þá til dáða með eftirfarandi hugmyndum:


Bekkjarkvöld

Bekkjarfulltrúar hafa verið beðnir um að virkja foreldra og halda lágmark tvö bekkjarkvöld á skólaárinu (eitt fyrir áramót og annað eftir áramót). Við vonum að allar bekkjardeildirnar haldi bekkjarkvöld sem fyrst, en foreldrafélagið ætlar að hvetja starfið með því styrkja tvö bekkjarkvöld á árinu í hverri bekkjardeild. Notið endilega hugmyndarflugið og finnið upp á einhverju skemmtilegu og látið foreldrafélagið endilega vita hvað er á döfinni hjá ykkur.

 

Samráðsfundir
Komið hefur upp sú hugmynd um að halda samráðsfundi í hverri bekkjardeild og skólastjórn hefur óskað eftir því að hún verði í umsjón foreldrafélagsins og bekkjarfulltrúanna. Ekki er enn búið að ganga frá því hvort eða hvernig þeir eigi þá að vera. Bekkjarfulltrúar í samvinnu við foreldra mega gjarna senda okkur hugmyndir fyrir ykkar bekkjardeild, t.d. um umræðuefni og tímasetningu. Við kunnum vel að meta ykkar frumkvæði í þeim efnum.


Vinahópar

Önnur hugmynd kom upp um að koma á svokölluðum „vinahópum" til að brjóta ísinn með börnum sem eru gjarna feimin eða eiga erfitt með að stækka vinahópinn innan bekkjardeilda. Um er að ræða góða samverustund í umsjón foreldra þar sem krakkarnir fá að kynnast hvort öðru betur utan skólans og jafnvel á heimilum hvors annars. Hægt væri að hafa nokkra 4-5 barna vinahópa í gangi í vetur og hittast sem dæmi einu sinni til tvisvar í mánuði 2-4 tíma í senn. Foreldrar barnanna gætu boðið vinahópi heim eða fara eitthvað saman til að gera eitthvað skemmtilegt. Ef til vill er hægt að ræða þetta betur á fyrirhuguðum samráðsfundum.

Hittingur með umsjónarkennara
Bekkjarfulltrúarnir eru hvattir til að funda með umsjónakennurum bekkjardeilda til að treysta samband heimilis og skóla. Bekkjarfulltrúar eru tengiliðir foreldra við umsjónarkennara og koma sjónarmiðum foreldra á framfæri þegar þess er þörf, sjá bls 29: http://www.heimiliogskoli.is/media/files/1198892159/Handbok_grunnskola.pdf

Hikið svo ekki við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.

Bestu kveðjur,

Foreldrafélagið

Nemendur Atburđir
« Maí 2012 »
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nćstu atburđir

Vefumsjón