Ađalfundur foreldrafélagsins 2011
Fimmtudaginn 27. október sl. var aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík haldinn í Félagsheimilinu á Hólmavík. Ákveðið var að efla starfsemi félagsins, kjósa nýja stjórn og fjalla um nýtt skipulag á bekkjarkvöldum sem og samráðsfundum. Bjarni Ómar Haraldsson skólastjóri kom og kynnti lög um foreldrafélög, ræddi um ávinning af öflugu foreldrastarfi, hlutverk foreldrafélaga og mikilvægi markmiðssetningar í starfi þeirra. Bjarni fjallaði einnig um samráðsfundi sem þyrfti að halda reglulega og skipuleggja vel fram í tímann. Þá fjallaði hann um breytingar á bekkjarkvöldum en umsjón þeirra verður nú í höndum foreldra en ekki kennara.
Fundarefni aðalfundar voru þessi:
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningar
3. Kosning stjórnar, bekkjafulltrúa og skoðunarmanna
4. Samráðsfundir og bekkjarkvöld
5. Félagsgjöld
6. Önnur mál
Gögn frá fundinum verða aðgengileg á síðu foreldrafélagsins innan skamms.
Þessir foreldrar voru tilnefndir sem fulltrúar í stjórn og bekkjarfulltrúar:
Stjórn foreldrafélagsins:
María Mjöll Guðmundsdóttir
Viktoría Rán Ólafsdóttir
Ester Sigfúsdóttir
Jón Eðvald Halldórsson
Sigurrós Þórðardóttir
Varamenn í stjórn:
Hlíf Hrólfsdóttir og hrafnhildur Þorsteinsdóttir
Bekkjarfulltrúar:
1. bekkur = Þuríður S. Friðriksdóttir og Vignir Pálsson
2. bekkur = Karl Víðir Jónsson
3. bekkur = Hlíf Hrólfsdóttir og Kolbrún Þorsteinsdóttir
4. bekkur = Guðrún Guðfinnsdóttir
5. bekkur = Jóhanna Guðbrandsdóttir
6. bekkur = Jón Jónsson
7. bekkur = Hlynur Gunnarsson
8. bekkur = Sigurður Marinó Þorvaldsson og Steinunn Þorsteinsdóttir
9. bekkur = Ingibjörg Sigurðardóttir
10. bekkur = Brynja Rós Guðlaugsdóttir
