Bekkjarkvöld, samráđsfundir og vinahópar

Nýlega hittist ný stjórn foreldrafélags grunnskólans. Í framhaldinu var ákveðið að efla samstarf við bekkjafulltrúa og hvetja þá til dáða með eftirfarandi hugmyndum:


Bekkjarkvöld

Bekkjarfulltrúar hafa verið beðnir um að virkja foreldra og halda lágmark tvö bekkjarkvöld á skólaárinu (eitt fyrir áramót og annað eftir áramót). Við vonum að allar bekkjardeildirnar haldi bekkjarkvöld sem fyrst, en foreldrafélagið ætlar að hvetja starfið með því styrkja tvö bekkjarkvöld á árinu í hverri bekkjardeild. Notið endilega hugmyndarflugið og finnið upp á einhverju skemmtilegu og látið foreldrafélagið endilega vita hvað er á döfinni hjá ykkur.

 

Samráðsfundir
Komið hefur upp sú hugmynd um að halda samráðsfundi í hverri bekkjardeild og skólastjórn hefur óskað eftir því að hún verði í umsjón foreldrafélagsins og bekkjarfulltrúanna. Ekki er enn búið að ganga frá því hvort eða hvernig þeir eigi þá að vera. Bekkjarfulltrúar í samvinnu við foreldra mega gjarna senda okkur hugmyndir fyrir ykkar bekkjardeild, t.d. um umræðuefni og tímasetningu. Við kunnum vel að meta ykkar frumkvæði í þeim efnum.


Vinahópar

Önnur hugmynd kom upp um að koma á svokölluðum „vinahópum" til að brjóta ísinn með börnum sem eru gjarna feimin eða eiga erfitt með að stækka vinahópinn innan bekkjardeilda. Um er að ræða góða samverustund í umsjón foreldra þar sem krakkarnir fá að kynnast hvort öðru betur utan skólans og jafnvel á heimilum hvors annars. Hægt væri að hafa nokkra 4-5 barna vinahópa í gangi í vetur og hittast sem dæmi einu sinni til tvisvar í mánuði 2-4 tíma í senn. Foreldrar barnanna gætu boðið vinahópi heim eða fara eitthvað saman til að gera eitthvað skemmtilegt. Ef til vill er hægt að ræða þetta betur á fyrirhuguðum samráðsfundum.

Hittingur með umsjónarkennara
Bekkjarfulltrúarnir eru hvattir til að funda með umsjónakennurum bekkjardeilda til að treysta samband heimilis og skóla. Bekkjarfulltrúar eru tengiliðir foreldra við umsjónarkennara og koma sjónarmiðum foreldra á framfæri þegar þess er þörf, sjá bls 29: http://www.heimiliogskoli.is/media/files/1198892159/Handbok_grunnskola.pdf

Hikið svo ekki við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.

Bestu kveðjur,

Foreldrafélagið

Jólaföndur 2011

Jólaföndur foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík verður með breyttu sniði í ár. Að þessu sinni verður jólaföndrið haldið í Félagsheimili Strandabyggðar mánudaginn 28. nóvember kl 18-20.

Í ár verður boðið upp á að kaupa jólaskraut úr keramik sem nemendur og foreldrar geta málað á föndurkvöldinu. Einnig er nemendum velkomið að taka með sér efni til að gera jólakort og fleira. Nánari upplýsingar um jólaföndrið verður sent þegar nær dregur.


Að sjálfsögðu hvetjum við alla nemendur, foreldra, systkini og ömmu og afa til að taka daginn frá, njóta skemmtilegra stunda með nemendum og styrkja einnig Danmerkurfara sem ætla að sjá um kaffisöluna í ár.


Sjáumst hress og mætum í jólaskapi!


Bestu kveðjur,

Foreldrafélag Grunnskólans á Hólmavík

Ađalfundur foreldrafélagsins 2011

Aðalfundur foreldrafélagsins

Fimmtudaginn 27. október sl. var aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík haldinn í Félagsheimilinu á Hólmavík. Ákveðið var að efla starfsemi félagsins, kjósa nýja stjórn og fjalla um nýtt skipulag á bekkjarkvöldum sem og samráðsfundum. Bjarni Ómar Haraldsson skólastjóri kom og kynnti lög um foreldrafélög, ræddi um ávinning af öflugu foreldrastarfi, hlutverk foreldrafélaga og mikilvægi markmiðssetningar í starfi þeirra. Bjarni fjallaði einnig um samráðsfundi sem þyrfti að halda reglulega og skipuleggja vel fram í tímann. Þá fjallaði hann um breytingar á bekkjarkvöldum en umsjón þeirra verður nú í höndum foreldra en ekki kennara.


Fundarefni aðalfundar voru þessi:
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningar
3. Kosning stjórnar, bekkjafulltrúa og skoðunarmanna
4. Samráðsfundir og bekkjarkvöld
5. Félagsgjöld
6. Önnur mál

Gögn frá fundinum verða aðgengileg á síðu foreldrafélagsins innan skamms.

Þessir foreldrar voru tilnefndir sem fulltrúar í stjórn og bekkjarfulltrúar:

 

Stjórn foreldrafélagsins:
María Mjöll Guðmundsdóttir
Viktoría Rán Ólafsdóttir
Ester Sigfúsdóttir
Jón Eðvald Halldórsson
Sigurrós Þórðardóttir

 

Varamenn í stjórn:
Hlíf Hrólfsdóttir og hrafnhildur Þorsteinsdóttir

 

Bekkjarfulltrúar:
1. bekkur = Þuríður S. Friðriksdóttir og Vignir Pálsson
2. bekkur = Karl Víðir Jónsson
3. bekkur = Hlíf Hrólfsdóttir og Kolbrún Þorsteinsdóttir
4. bekkur = Guðrún Guðfinnsdóttir
5. bekkur = Jóhanna Guðbrandsdóttir
6. bekkur = Jón Jónsson
7. bekkur = Hlynur Gunnarsson
8. bekkur = Sigurður Marinó Þorvaldsson og Steinunn Þorsteinsdóttir
9. bekkur = Ingibjörg Sigurðardóttir
10. bekkur = Brynja Rós Guðlaugsdóttir

Stjórnarfundur 22. febrúar 2011

Stjórnarfundur var haldinn í foreldrafélagi Grunnskólans á Hólmavík 22. febrúar 2011 kl 17 í Þróunarsetrinu á Hólmavík. Þar var rætt um bolludaginn, öskudaginn, forvarnarstarf, starf bekkjarfulltrúa, jólaföndur og aðild að Heimili og skóla.

Fundargerð frá fundinum má sjá hér.

Með kveðju,
stjórnin.

Jólaföndur

Jólaföndur foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík verður mánudaginn 13. desember kl. 18 - 20. Við hvetjum alla nemendur, foreldra, systkini og ömmu og afa til að koma í notalega jólastemmningu þar sem við hlustum saman á jólalög, föndrum og borðum vöfflur.

Tilbúnir föndurpakkar verða seldir á staðnum ásamt bakkelsi á vægu verði og því gott að vera með fé til reiðu í það.
Einnig er gott að koma með nál og tvinna, tölur, perlur og smádót, skæri, skraut á jólakort, borða og þess háttar.

Sjáumst hress í föndurstuði!
Jólakveðja, foreldrafélag Grunnskólans á Hólmavík

Ađalfundur foreldrafélagsins.

Miðvikudaginn 1. desember sl. var aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík haldinn í Félagsheimilinu á Hólmavík. Ætlunin var að efla starfsemi félagsins til muna, kjósa nýja stjórn og leggja fram tillögu að mjög viðamiklum lagabreytingum. Fundurinn hófst á áhugaverðu og fróðlegt erindi með sérkennslufræðingnum Guðjóni Ólafssyni Góð börn - það gerist ekki að sjálfu sér. Eftir það voru ítalskættaðar veitingar í boði Foreldrafélagsins og þá tók aðalfundurinn við.

Fundarefnin voru þessi:
1. Stutt kynning á hlutverki foreldrafélaga
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar síðasta starfsárs
4. Lagabreytingar
5. Kosning stjórnar, bekkjarfulltrúa og skoðunarmanna
6. Önnur mál

Gögn frá fundinum verða aðgengileg á síðu foreldrafélagsins innan skamms.

Þessir foreldrar voru tilnefndir sem fulltrúar í stjórn og bekkjarfulltrúar:

Stjórn foreldrafélagsins:
Kristinn Schram
María Mjöll Guðmundsdóttir
Jónas Gylfason
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Viktoría Rán Ólafsdóttir

Varamenn í stjórn:
Guðbrandur Ásgeir og Ester Sigfúsdóttir.

Bekkjarfulltrúar:
1. bekkur = Karl Víðir Jónsson
2. bekkur = Aðalbjörg Guðbrandsdóttir
3. bekkur = Guðrún Guðfinnsdóttir
4. bekkur = Jóhanna Guðbrandsdóttir
5. bekkur = Jón Jónsson
6. bekkur = Jóhann Lárus Jónsson
7. bekkur = Sigurður Marinó Þorvaldsson og Steinunn Þorsteinsdóttir
8. bekkur = Ingibjörg Sigurðardóttir
9. bekkur =  Brynja Rós Guðlaugsdóttir
10. bekkur = Bryndís Sveinsdóttir og Júlíus Freyr Jónsson
Nemendur Atburđir
« Febrúar 2012 »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Nćstu atburđir

Vefumsjón