Hildur Guđjónsdóttir | 23. janúar 2012 |

Enska og náttúrufrćđi 23.-30. janúar

Kæru nemendur, foreldrar og forráðamenn í 9. og 10. bekk.

Hér koma viðmið í ensku og náttúrufræði vikuna 23.-30. janúar.

 

Enska:
Samkvæmt kennsluáætlun eiga nemendur að vinna Action lesbók bls. 54-62 og Action vinnubók A bls. 47-55. Einhverjir eru komnir lengra og hafa fengið afhenta vinnubók B, smásögur og málfræðiæfingar sem þeir geta unnið í. Mikilvægt er að nemendur setji sér áform og stefni að einhverju í þessari viku hvort sem þeir fylgja kennsluáætlun eða ekki. Sjá Skjatta. Nemendur vinna sem mest í skólanum en það sem ekki klárast þar verður að vinna heima.
ATH: Þriðjudaginn 31. janúr nk, er sagnapróf 5, sjá blað.

 

Náttúrufræði:
Sól, tungl og stjörnur. Nú erum við að ljúka við 2. kafla. Við lesum bls. 63-69 í vikunni, glósum og vinnum verkefni. Eftir það er upprifjun úr kafla 2. Mikilvægt er að nemendur sem misst hafa úr kennslu verði sér út um glósur, spurningar og verkefni.
ATH: Próf úr 2. kafla er mánudaginn 30. janúar nk. Skoða vel allar glósur og spurningar frá kennara.

 

Hikið ekki við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna!

Kær kveðja,
Hildur
s. 661-2010
hildur@holmavik.is

Hildur Guđjónsdóttir | 20. janúar 2012 |

Kennsluáćtlun í ensku á vorönn

Nú hafa allir fengið senda kennsluáætlun í ENSKU frá 23. janúar til 25. maí 2012.

ATHUGIÐ að þessi kennsluáætlun miðast við þau viðmið sem enskukennari setur fyrir bekkinn. Einhverjir eru komnir styttra, aðrir eru komnir lengra en þetta eru þau viðmið sem kennari setur fyrir bekkinn á vorönn 2012. Best væri ef nemendur stefndu að því að fylgja áætluninni. Athugið að áætlunin er sveigjanleg og mun taka tillit til uppbrots í skólastarfinu og fleiri þátta. Stefnt er að því að nemendur vinni sem mest í skólanum en það sem næst ekki að klára í skólanum skal vinna heima. Ef að kennari leggur fyrir verkefni sem ekki eru skráð á kennsluáætlun verður sendur tölvupóstur til forráðamanna og nemenda og það skráð á Mentor.

Með kveðju Hildur
hildur@holmavik.is
s. 451-3129 og 661-2010

 

Hildur Guđjónsdóttir | 15. janúar 2012 |

Enska og náttúrufrćđi 9.-15. janúar

Heil og sæl.

Hér koma upplýsingar um ensku og náttúrufræði vikuna 9.-15. janúar. Vinsamlega athugið með nemendum hvort að þau hafa lokið markmiðum sínum fyrir næstu viku - það sem ekki næst að vinna í skóla, vinna nemendur heima.

Enska:
Sjá áform nemenda í Skjatta.
ATH vel: Á mánudaginn 16. janúar verður sagnapróf 3. Gera æfingar við sagnir (bakhlið) læra óreglulegar sagnir.

Náttúrufræði:
Lesa vel bls. 54-59. Við fórum yfir það allt í skólanum og glósuðum.
Í síðustu viku lásum við og glósuðum bls. 51-54.
Eftir helgi á að skila svörum við 22 spurningum úr bls. 51-59. Þau fengu spurningarnar á fimmtudaginn og fengu 40 mínútur til að vinna þær í skólanum svo er tími á mánudag og skil á þriðjudaginn.

Hikið ekki við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna!
Kolbeinn Skagfjörđ Jósteinsson | 06. janúar 2012 |

Íţróttir

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla. Nú ætla ég að vera duglegri að skrifa inn á síðuna það sem við erum að fást við í íþróttum. Í þessari viku fórum við að gera pýramída með okkur sjálf, ásamt því að gera turna. Þetta var virkilega skemmtilegt og allir höfðu gaman af. Þið getið séð myndir af þessu inn á skólasíðunni ef þið farið inn í myndaalbúmið..
Kv Kolli 
Jóhanna Ása Einarsdóttir | 18. nóvember 2011 |

Stćrđfrćđi og náttúrufrćđi 14. - 18. nóvember

STÆRÐFRÆÐI:
Nemendur eru að vinna að markmiðum sínum og gengur vel. Markmiðið er hjá öllum að klára kafla 3 í stærðfræði fyrir jól, nemendur setja niður hjá sér hvernig þeir ætla að fara að því og eiga að vinna eftir því. Allir eru byrjaðir á kaflanum en eru mislangt komnir eins og gengur og gerist.
NÁTTÚRUFRÆÐI:
Byrjað var á nýrri bók sem heitir Sól, tungl og stjörnur. Unnið var með kafla 1 og öll upprifjunarverkefnin í kaflanum unnin. Er þetta spennandi bók sem fjallar um áhugavert svið jarðvísinda eða stjörnufræðina. Nemendur fengu upplýsingar um ritgerðina sem þeir eiga að skila 6. desember.
 
Jóhanna Ása Einarsdóttir | 14. október 2011 |

Stćrđfrćđi og náttúrufrćđi 10. - 14. október

Þessa viku hafa nemendur verið að vinna að markmiðum sínum í stærðfræði. Nemendur í 9. bekk eru að ljúka vinnu við 2. kafla og nokkrir búnir. Nemendur 10. bekkjar eru að vinna við 2. og 3. kafla. 
Í náttúrufræði byrjuðum við vinnu við kafla 3 og gengur sú vinna vel.
Kveðja Ása 
Bjarni Ómar Haraldsson | 12. október 2011 |

Viđfangsefnin í dönsku

Danskan er á fullum skrið og nemendur í óða önn að vinna í sínum áformum. Nú er mikilvægt að kíkja á námsmatsþáttinn þar sem annarskipti nálgast óðfluga.

Úr bekkjarnámasskrá 9. og 10. bekkjar

Námsmat:

- Í dönsku fer fram Símat sem gildir 20% af lokaeinkunn. Símat vetrarins felst í fjórum atriðum, virkni (tekur nemandi þátt í öllu í náminu, leggur hann sig fram o.s.frv.) samvinnu (getur hann unnið í hóp og hefur hann góð áhrif á framvinndu annarra í náminu) ástundun (vinnur nemandi þau verkefni sem lögð eru fyrir), samskipti (eru samskipti við kennara og samnemendur góð og byggð á vilja til að auka árangur sinn og samnemenda).

- Valin verkefni ( fjögur á hverri önn) verða metin og gilda þau samtals 30%.

- Nemendur taka próf í lok hverrar annar sem skiptist í munnlegt próf sem gildir 20% og skriflegt próf sem gildir 30%. (Eingöngu er prófað er úr námsefni sem búið er að vinna með)

- Skólaeinkunn sem gefinn er við lok vorannar er meðaltal af árangri nemenda á öllum þremur önnum skólaársins.

Nú eru nemendur að hefja vinnu við tvö af þeim verkefnum sem kölluð eru Valin verkefni í námsmatslýsingunni ( fjögur á hverri önn) sem verða metin og gilda þessi tvö samtals 15% af  þeim 30% sem í boði eru undir þessum lið.

Valin verkefni, verkefni I. Skil 26. október:

Nemendur velja sér eina smásögu úr Danska Smásagansafninu "En fisketur". Bókina tóku þau á safninu í tíma í dag, 12 október. Nemendur lesa sér til skilnings, glósa og þýða og skila endursögn á DÖNSKU. Verkefnið er að lengd sem nemur A4 blaði sem unnið er í Word eða öðru ritvinnsluforriti. Línubil er 1 1/2 og stafagerð skal vera 12 punkta Times new roman. Mikilvægt er að nemendur fjalli um söguna á sem breiðastan hátt og þurfa þau jafnvel að fara í að útfæra hugmyndir sínar og túlka söguna ef þær eru mjög stuttar.

Verkefnið gildir 10% af annareinkunn og tekið er tillit til þess hvort nemendur hafa valið auðveldu leiðina eða lagt á sig og gert til sín kröfur.  Nemendur eiga að láta kennara vita hvaða saga varð fyrir valinu í tíma á mánudag 17. okt.

Valin verkefni, verkefni II.

Nemendur undirbúa seig best með því lesa blaðsíðu 3 - 9 í lesbókinni EKKÓ og þekkja orðin og hvernig þau eru skrifuð mjög vel. Í  EKKÓ þarf ekki að lesa bls. 6 . Þeir sem ekki eru í EKKÓ lesa í Bókinni TÆNK blaðsíðu 4 - 9 og undirbúa sig eins. 

Í kennslustund 19. október mun kennari lesa upphátt valdar málsgreinar eða umfjöllun úr efninu og nemendur rita textann upp á dönsku. Í kjarnann er um að ræða sambærilegt verkefni og við þekkjum öll með stafsetningaræfingu í Íslensku.

Verkefnið gildir 5% af annareinkunn.

Gangi ykkur vel.

Bjarni Ómar

Hildur Guđjónsdóttir | 11. október 2011 |

Enskar sagnir

Kæru foreldrar og nemendur.

Í enskutímanum í dag unnum við með 10 enskar óreglulegar sagnir. Það er mikilvægt að
nemendur læri þessar sagnir á námsferlinum sínum. Einhverjir kunna þessar sagnir nú
þegar en nú ætlum við að læra 10 óreglulegar sagnir utanbókar og 1. sagnaprófið
verður mánudaginn 17. október þar sem þessar 10 óreglulegu sagnir koma fyrir: be,
come, write, buy, do, eat, tell, go, give og think.

a) Reglulegar sagnir mynda allar þátíð og lýsingarhátt þátíðar á sama (reglulegan)
hátt með endingunni -ed og taka allar á sig þriðju persónu-s í þriðju persónu,
eintölu, nútíð. Reglulegar sagnir mynda lýsingarhátt nútíðar með endingunni -ing.

b) Óreglulegar sagnir mynda allar þátíð eða lýsingarhátt þátíðar eða báðar þessar
sagnmyndir óreglulega (ekki með endingunni -ed), en taka allar á sig endinguna -s í
þriðju persónu, eintölu, nútíð. Óreglulegar sagnir, eins og reglulegar sagnir, mynda
lýsingarhátt nútíðar með endingunni -ing.

Þátíð og lýsingarháttur reglulegra sagna í ensku myndast með endingunni -ed.
Óreglulegar sagnir nota ekki þessa endingu til þess að mynda þessar tíðir, heldur
ýmsan annan hátt. Þar sem þessar sagnir hlýta ekki hinni almennu reglu, verður að
læra þær utan að til þess að geta notað þær rétt.

Í viðhengi má sjá blaðið sem nemendur fengu með sér heim í dag.

Nú er tilvalið að æfa sig heima við eldhúsborðið, í bílnum eða bara hvar sem er :o)

Með kveðju,
Hildur

Jóhanna Ása Einarsdóttir | 07. október 2011 |

3.-7. október stćrđfrćđi og náttúrufrćđi

Í stærðfræði eru allir að vinna að markmiðum sínum og eru mjög duglegir við vinnu sína. Nemendur eru að vinna við kafla 2 og gengur vel.
Í náttúrufræði vorum við að skrúfa í sundur gömul útvörp og skoða hvað er inn í þeim. Á fimmtudeginum var próf úr kafla 2 í bókinni Kraftur og hreyfing.  
Hildur Guđjónsdóttir | 04. október 2011 |

Áform í ensku

Kæru foreldrar og nemendur.

Athugið að nú erum við búin að setja ný áform til 10. október fyrir enskuna í skipulagsbókina Skjatta.
Það er mikilvægt að nemendur vinni jafnt og þétt í skólanum og vinni upp það sem ekki næst að klára heima.

Vinsamlega skoðið þetta með krökkunum og hvetjið þau áfram.

Með góðri kveðju,
Hildur
Fyrri síđa
1
2Nćsta síđa
Síđa 1 af 2
Eldri fćrslur
Nemendur Atburđir
« Maí 2012 »
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nćstu atburđir

Vefumsjón