Íţróttir
Kv Kolli
Íslenska: Í íslensku höfum við mikið verið að vinna í vinnubókum, búið til sögur, farið í hringekju og fleira skemmtilegt. Við höfum einnig verið að prófa að skipta hópnum aðeins upp það sem hver árgangur er tekin út í einni kennslustund og vinnur þar með einum kennara á meðan hinir eru hjá öðrum kennara. Það hfur gefið góða reynslu svona í upphafi.
Stærðfræði: Í stærðfræðinni höfum við verið að vinna hvert og eitt á sínum stað í bókunum. Við höfum einnig verið að spila sequence, 7 ate 9 og uno. Hópnum í stærðfæði hefur einnig verið skipt upp – og munum við halda áfram með það - hver árgangur verður tekin út og vinnur með einum kennara.
Listir: Í listum höfum við verið að vinna mynstur og nú síðast vorum við að læra að prjóna
Enska: þar höfum við verið að æfa okkur í að tala ensku í tímunum. Við höfum verið að glósa og nú höfum við bætt inn hlustun líka.
Upplýsingatækni: Þar erum við að byrja að vinna með word,
einnig vinnum við áfram á bókasafni. Áður höfum við verið mest verið að æfa
okkur í fingrafimi.
Samfélagsfræði: Þar höfum við verið að vinna með kortalestur. Nú erum við að
leggja af stað í verklega vinnu þar sem hver hópur er með eitt land og gerir
verkefni tengt því. Einnig verða löndin teiknuð upp á veggspjald.
Íslenska: Í íslensku hefur áherslan verið mest á málfræði.
Við höfum verið að skrifa bátsögur, risaeðlusögur og fleira. Við höfum einnig
farið í „lestaraferðir“ og hringekju.
Stærðfræði: Í stærðfræðinni höfum við verið að vinna hvert og eitt á sínum stað
í bókunum. Við höfum verið að vinna með mynstur, klipt út mynstur og límt aftur
saman. Við höfum einnig verið að spila, verið úti að mæla og gert fleira
skemmtilegt.
Listir: Í listum höfum við verið að vinna áfram í bókagerð. Einnig höfum við verið að teikna upp fyrirmyndir.
Enska: þar höfum við áfram verið að æfa okkur í að tala ensku í tímunum. Við gerðum líka auglýsingu í tengslum við fata-orð sem við vorum að læra.
Upplýsingatækni: Þar höfum við verið að æfa okkur í
fingrafimi, unnið á bókasafninu, unnið með Náttúruvefsjá og fleira.
Samfélagsfræði: Þar höfum við verið að vinna áfram með kortalestur,
lengdarbauga, breiddarbauga og tímabelti.
Tónmennt og tjáning: þar höfum við verið að vinna með upplestur, upplestur með
tónlist og fleira.
Náttúrufræði: Þar vinnum við með bókina Líf í fersku vatni. Við höfum fundið
sýni og skoðað í smásjá.